Til bakaPrenta
Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja - 328

Haldinn Í fundarsal Fjölskyldu- og fræðslusviðs við Kirkjuveg,
21.04.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Gísli Stefánsson varaformaður,
Arnar Gauti Egilsson 1. varamaður,
Rannveig Ísfjörð aðalmaður,
Hrefna Jónsdóttir formaður,
Hildur Rún Róbertsdóttir aðalmaður,
Jón Pétursson framkvstj.sviðs.
Fundargerð ritaði: Jón Pétursson, sviðsstjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 202604017 - Viltu hafa áhrif - seinni úthlutun 2026
Vestmannaeyjabær auglýsti eftir umsóknum í styrktarsjóð menningar, lista, íþrótta og tómstunda undir heitinu Viltu hafa áhrif 2026. Um er að ræða styrkumsóknir fyrir seinni hluta árs 2026.

Markmiðið sjóðsins er að styrkja menningar-, lista-, íþrótta- og tómstundastarfsemi í Vestmannaeyjum með því að styðja við og hvetja einstaklinga, félagasamtök og listahópa til eflingar á viðburðum og verkefnum á sviði menningar, lista, íþrótta og tómstunda.

Alls bárust 23 styrkumsóknir, þ.e. 11 menningar- og listatengd verkefni sem bæjarráð tekur afstöðu til og 12 íþrótta- og tómstundatengd verkefni sem fjölskyldu- og tómstundaráð tekur afstöðu til.

Niðurstaða
Fjölskyldu- og tómstundaráð þakkar fyrir umsóknirnar. Ráðið samþykkir styrki vegna seinni úthlutunar 2026 sem tilkynntir verða við athöfn í lok apríl.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:20 

Til bakaPrenta