| |
| 1. 201910096 - Þróunarsjóður leik-, grunn- og tónlistarskóla | | Harpa Hauksdóttir kynnti verkefnið Heimasíða fyrir heimilisfræði í GRV - myndbönd, myndir og orðaforði til að auðvelda og nútímavæða heimilisfræðikennslu sem hlaut styrk úr Þróunarsjóði leik-grunn- og tónlistarskóla 2024. | Niðurstaða Fræðsluráð þakkar Hörpu Hauksdóttur fyrir áhugaverða kynningu á verkefninu Heimasíða fyrir heimilisfræði í GRV. Ráðið fagnar þessu spennandi og vel útfærða verkefni sem auðveldar nemendum aðgengi að kennsluefni og styður við nútímalega kennsluhætti. | | Hér er linkur á heimasíðuna; https://grv-heimilis.onrender.com/
| |
|
| 2. 201910096 - Þróunarsjóður leik-, grunn- og tónlistarskóla | | Umsóknir í Þróunarsjóð leik-, grunn- og tónlistarskóla fyrir árið 2026. Alls bárust fimm umsóknir í sjóðinn þetta árið. Þrjú verkefni hljóta styrk að heildarupphæð 2.039.875 kr. | Niðurstaða Umsækjendum er þakkað fyrir umsóknirnar. Umsækjendum verður svarað fyrir 30. apríl n.k. eins og reglur sjóðsins gera ráð fyrir. Styrkir verða afhentir við sérstaka athöfn í maí n.k. | | |
|
| 3. 202603028 - Röddin upplestrarkeppnin og teiknisamkeppni MS | | Deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála fjallaði um ánægjulegan árangur nemenda Grunnskóla Vestmannaeyja í lokakeppni Raddarinnar og í árlegri teiknisamkeppni MS. | Niðurstaða Fræðsluráð fagnar árangri nemenda Grunnskóla Vestmannaeyja en þann 14. apríl s.l. kepptu nemendur í lokakeppni Raddarinnar sem haldin var í Vík í Mýrdal. Nemendur GRV stóðu sig með mikilli prýði en sigurvegari keppninnar kom úr röðum GRV. MS heldur árlega teiknisamkeppni fyrir nemendur í 4. bekk. Í ár voru um 1.300 teikningar sendar inn frá 70 skólum og hlutu tvær myndir eftir fimm nemendur GRV verðlaun, sem er ánægjuleg viðurkenning á skapandi starfi nemenda. Þess má geta að þetta er ekki í fyrsta sinn sem nemendur GRV vinna til þessara verðlauna. | | |
|
| 4. 202604021 - Útboð á skólamat | | Sviðsstjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs kynnti drög að útboðsforsendum og stöðu máls. Óskað verður eftir tilboðum í framleiðslu og afhendingu á elduðum hádegismat fyrir nemendur og starfsfólk grunnskóla, leikskóla, frístundar og þjónustuúrræði. Umfang útboðs er það stórt að bjóða þarf það út á Evrópska efnahagssvæðinu. | Niðurstaða Fræðsluráð þakkar kynningu á útboði á skólamat og leggur áherslu á að vanda útboðsskilmála. Mikilvægt sé að tryggja öryggi, gæði, heilnæmi og fjölbreytileika matarins sem og tryggja birtingu matseðils með góðum fyrirvara til að draga úr matarsóun. Ráðið felur sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs að undirbúa útboðið og leggja það fyrir bæjarráð til afgreiðslu. | | |
|