Til bakaPrenta
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 430

Haldinn í Ráðhúsinu,
19.11.2025 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu: Jóna S. Guðmundsdóttir formaður,
Margrét Rós Ingólfsdóttir aðalmaður,
Jónatan Guðni Jónsson aðalmaður,
Jarl Sigurgeirsson aðalmaður,
Drífa Þöll Arnardóttir aðalmaður,
Dagný Hauksdóttir starfsmaður sviðs, Brynjar Ólafsson framkvstj.sviðs, Rannveig Ísfjörð starfsmaður sviðs.
Fundargerð ritaði: Dagný Hauksdóttir, skipulags-og umhverfisfulltrúi
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir formaður vel af fundi í máli 2.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 202510049 - Miðgerði - Úthlutun lóða
Umsóknarfrestur vegna umsóknar um lóðir við Helgafellsbraut 22-26 og Miðgerði 1-11 rann út þann 13. nóvember síðastliðinn.
Nokkrar umsóknir bárust um hverja lóð. Samkvæmt vinnureglum Vestmannaeyjabæjar um lóðarúthlutanir hafa einstaklingar forgang fyrir einbýlis- og tvíbýlis lóðir og falla fyrirtæki því út þar sem fleiri en tveir einstaklingar sóttu um fyrir þær lóðir.

Fulltrúi sýslumanns, Sæunn Magnúsdóttir sér um útdrátt umsækjenda.

Niðurstaða
Samkvæmt vinnureglum Vestmannaeyja um úthlutun byggingaróða hafa einstaklingar forgang í útdrátt fyrri einbýlis-, par- og tvíbýlishúsalóðir. Hver einstaklingur getur einungis fengið eina lóð í þessum flokki úthlutuaða í útdrætti nema að vera eini umsækjandi um lóðina. Ef að sami einstaklingur er dreginn út fyrir fleiri en eina einbýlis-, par- eða tvíbýlislóð þarf því að velja á milli lóða.

Niðurstaða úthlutunar er eftirfarandi:

Helgafellsbraut 22-26 (raðhús)
1. Friðbjörn Ómarsson
2. Menn og mót
3. Geirfuglasker
4. Helgi Bragason
5. Valur Smári Heimisson
6. Steini og Olli
7. FÓ Verk
8. Ólafur Þór Sigurvinsson
9. HBB ehf.
10. 2Þ ehf.
11. Ómar Andri Ómarsson
12. Víðir Þorvarðarsson
13. Valur Andersen
14. Jask og Brask
15. V20 ehf.
16. Herjólfsdalur ehf.

Miðgerði 1-3 (tvíbýli)
1. Valur Smári Heimisson
2. Helgi Bragason
3. Ólafur Þór Sigurvinsson
4. Friðbjörn Ómarsson
5. Valur Andersen
6. Ómar Andri Ómarsson
7. Andri Steinn Sigurjónsson
8. Daníel Ingi Sigurjónsson
9. Víðir Þorvarðarsson

Miðgerði 5-7 (tvíbýli)
1. Ómar Andri Ómarsson
2. Helgi Bragason
3. Friðbjörn Ómarsson
4. Ólafur Þór Sigurvinsson
5. Valur Andersen
6. Birgir Nielsen Þórsson
7. Hjálmar Jónsson
8. Valur Smári Heimisson

Miðgerði 9 (einbýli)
1. Valur Andersen
2. Ólafur Þór Sigurvinsson
3. Friðbjörn Ómarsson
4. Guðjón Ásgeir Helgason
5. Hjálmar Jónsson
6. Ríkarð Magnússon og Brynja Rut Halldórsdóttir
7. Jón Helgi Gíslason
8. Magnús Gíslason
9. Víðir Þorvarðarson
10. Helgi Bragason

Miðgerði 11 (einbýli)
1. Hjálmar Jónsson
2. Ólafur Þór Sigurvinsson
3. Jón Helgi Gíslason
4. Brynja Rut Halldórsdóttir og Ríkarð Magnússon
5. Valur Andersen
6. Friðbjörn Ómarsson
7. Helgi Bragason
8. Magnús Gíslason

Miðgerði 2 (einbýli)
1. Friðbjörn Ómarsson
2. Brynja Rut Halldórsdóttir og Ríkarð Magnússon
3. Hjálmar Jónsson
4. Guðný Halldórsdóttir

Miðgerði 4 (einbýli)
1. Hjálmar Jónsson
2. Guðný Halldórsdóttir
3. Guðjón Ásgeir Helgason

Miðgerði 6 (einbýli)
1. Guðjón Ásgeir Helgson
2. Guðný Halldórsdóttir
3. Dagmar Skúladóttir
4. Hjálmar Jónsson

Miðgerði 8 (einbýli)
1. Friðbjörn Ómarsson
2. Dagmar Skúladóttir
3. Birgir Nielsen Þórsson
4. Hjálmar Jónsson
5. Guðný Halldórsdóttir
6. Ríkarð Magnússon og Brynja Rut Halldórsdóttir

Ráðið samþykkir að úthluta lóðunum sbr. Vinnureglur við úthlutun byggingarlóða hjá Vestmannaeyjabæ.
2. 202510047 - Stækkun iðnaðarsvæðis í Viðlagafjöru - Breyting á Aðal- og deiliskipulagi
Lögð er fram greinargerð með viðbrögðum ráðsins vegna athugasemda sem bárust við skipulagslýsingu á auglýsingartíma.

Skipulagslýsing vegna skipulagsáforma sem fela í sér breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja og á Deiliskipulagi í Viðlagafjöru, vegna aukin umfangs laxeldis á svæðinu var auglýst á tímabilinu 31. október - 14. nóvember 2025.

Sjö umsagnir bárust vegna aðalskipulagbreyingarinna og sjö vegna deiliskipulagsbreytingarinnar allar frá opinberum umsagnaraðilum og eru sex af umsögnunum samskonar fyrir aðalskipulag og deiliskipulag. Lögð er fram greinargerð ásamt tillögum að viðbrögðum þar sem við á.

Samhliða eru lagðar eru fram vinnslutillögur fyrir breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 og breytingu á deiliskipulagi Viðlagafjöru. Tillaga að breyttu aðalskipulagi felur í sér stækkun Iðnaðarsvæðis I-3 yfir meginhluta efnisvinnslusvæðis E-1 til að gefa aukið rými fyrir laxeldi í Viðlagafjöru. Megin viðfangsefni tillögu að breyttu Deiliskipulagi í Viðlagafjöru fela í sér nýja lóð fyrir seiðaeldisstöð á norður hluta iðnaðarsvæðisins, aukið byggingarmagn og uppfærða skilgreiningu lóða.

Niðurstaða
Ráðið felur skipulagsfulltrúa að kynna tillögu á vinnslustigi að breyttu Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 sbr. 2. mgr. 30. Gr. skipulaglaga nr. 123/2010, og tillögu á vinnslustigi að breyttu deiliskipulagi í Viðlagafjöru skv. 3 mgr. 40. Gr.

Erindi vísað til bæjarstjórnar.
113168-001-SKY-V01-Skipulagslýsing Viðlagafjara.pdf
113168-00V1-ASK-V02-Vestmannaeyjabær_Viðlagafjara-vinnslutillaga.pdf
113168-001-DSK-V02-Viðlagafjara uppdráttur.pdf
113168-001-DSK-V04-Viðlagafjara.pdf
Náttúrufræðistofnun - Umsögn ASK og DSK Viðlagafjara stækkun 2025.pdf
Náttúruverndarstofnun - Umsögn ASK og DSK Viðlagafjara stækkun 2025.pdf
HSL - Umsögn DSK Viðlagafjara stækkun 2025.pdf
Vegagerðin - Umsögn ASK og DSK Viðlagafjara stækkun 2025.pdf
Landsnet - Umsögn ASK og DSK stækkun 2025.pdf
Fiskistofa - Umsögn DSK Viðlagafjara 2025.pdf
Hafrannsóknarstofnun - Umsögn ASK og DSK Viðlagafjara stækkun 2025.pdf
HSL - Umsögn ASK Viðlagafjara stækkun 2025.pdf
Fiskistofa - Umsögn ASK Viðlagafjara stækkun 2025.pdf
113168-MIN-002-V01-umsagnir við lýsingu.pdf
3. 202407040 - Ofanleiti skipulagsáætlanir athafnasvæði AT-4
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti þann 11. júní 2025 að auglýsa skipulagsáætlanir vegna stækkunar athafnasvæðis í Ofanleiti. Skipulagsáætlanirnar gera ráð fyrir breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 vegna stækkunar Athafnasvæðis AT-4, nýju deiliskipulagi athafnasvæðis við Ofanleitisveg og breytingu á deiliskipulagi frístundarbyggðar.

Skipulagsáætlanirnar voru auglýstar á tímabilinu 9. september - 21 október 2025. Alls bárust 22 umsagnir frá 13. aðilum vegna málsins, 7 umsagnir frá umsagnaraðilum og 15 frá einstaklingum. Í einhverjum tilfellum var sama umsögn lögð fram fyrir aðalskipulag og deiliskipulag og koma þær umsagnir aðeins einu sinni fyrir í fundargerð.

Lögð er fram greinargerð sem sýnir samantekt vegna umsagna og viðbragða umhverfis- og skipulagsráðs þar sem við á.

Niðurstaða
Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti að staðfesta skipulagsáætlanir í Ofanleiti sem fela í sér breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 vegna stækkunar Athafnasvæðis AT-4, breytingu á deiliskipulagi Frístundarbyggðar í Ofanleiti og nýtt deiliskipulag Athafnasvæðis við Ofanleiti.

Ráðið þakkar bréfriturum og leggur fram greinargerð með viðbrögðum við athugasemdum.

Erindi vísað til bæjarstjórnar.
A1663-004-U06 Tillaga að breytingu ASK við Ofanleitisveg - eftir athugsun Skipulagsst.pdf
A1663-008-U02 Athafnasvæði við Ofanleitisveg - Viðhengi með ásýndarmyndum.pdf
A1663-008-U02 Athafnasvæði við Ofanleitisveg - Deilsikipulag .pdf
A1663-010-U02 Athafnasvæði við Ofanleitisveg - Deilsikipulag uppdráttur A3.pdf
A1663-009-U02 uppdráttur-frístundabyggd_deiliskipulagsbreyting.pdf
Ívar Pálsson 20251021Ofanleitiathugasemdir udirritað.pdf
Ofanleitisvegur 12 Umsögn skipulag Ofanleiti.pdf
Ólafur Ragnarsson umsögn Breyting á aðalskipulagi.pdf
Umsögn - Hafþór Ólason.pdf
Umsögn - Þórður Kristján Karlsson.pdf
Umsögn - Ívar Pálsson.pdf
HSL Umsögn um breytingu á aðalskipulagi við Ofanleitis.pdf
Umsögn - Ásgeir Sverrisson.pdf
Umsögn - Friðrik Páll Arnfinnsson.pdf
Umsögn - Valgeir Ólafur Kolbeinsson.pdf
Náttúruverndarstofnun Umsogn Ofanleiti - Vestmannaeyjar.pdf
Magnús Ingi Eggertsson Umsogn-athugasemd-Ofanleiti .pdf
HSL Umsögn um auglýsingu á tillögu, breyting á deiliskipulagi.pdf
Náttúrufræðistofnun Umsogn_Natt_Ofanleiti.pdf
HSL Ofanleiti, frístundasvæði - umsögn um auglýsingu deiliskipulags.pdf
Minjastofnun Íslands Umsögn DSK athafnasvæði ofanleiti.pdf
Minjastofnun Íslands - Umsögn um athafnasvæði AT-4 tölvupóstur.pdf
A1663-014-U01 Ofanleitisvegur Svör við athugasemum á auglýsingartíma.pdf
4. 202511135 - Erindi vegna umfjöllunar ráðsins um breytt deiliskipulagi við Strandveg 44
Erindi hefur borist frá Inga Sigurðssyni fyrir hönd Steina og Olla-bygg.verkt ehf. vegna umfjöllunar og efnisatriði deiliskipulagsbreytingar við Strandveg 44. M.a. eru gerðar athugasemdir vegna skuggavarps og sólskynsstunda sem fyrirhuguð uppbygging við Strandveg 44 mun hafa gagnvart Tangagötu 10 og einnig farið fram á að gerðar verði frekari greiningar á vindstrengjum og sambrunahættu.

Niðurstaða
Ráðið þakkar bréfriturum og mun taka athugasemdir bréfritara til skoðunar að lokinni auglýsingu skipulagsbreytingarinnar.
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - Strandvegur 44, athugasemdir Steina og Olla ehf. varðandi fyrirliggjandi tillögu að breyttu deiliskipulagi.pdf
Tölvupóstur frá Inga Sigurðssyni 14. nóvember 2025.pdf
Skuggavarp Strandvegar 44 á Tangagötu 10 - Fylgiskjal A, unnið af Teiknistofu PZ ehf..pdf
Sólskinsstundir fyrir Tangagötu 10 - Fylgiskjal B unnið af Teiknistofu PZ ehf..pdf
5. 202502135 - Strandvegur 44 - Umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Lögð fram til samþykkis fyrir auglýsingu tillaga að breyttu Deiliskipulagi Hafnarsvæðis (H-1) og Miðsvæðis M-1 norðan Strandvegar vegna fyrirhugaðra áforma um uppbyggingu fjölbýlishúss og þjónustu við Strandveg 44.

Málið var tekið fyrir á 428 fundi umhverfis- og skipulagsráðs og var lóðarhöfum falið að uppfæra skipulagsgögn í samræmi við samantekt ráðsins og athugasemdir við greinargerð áður en málið skyldi tekið fyrir í bæjarstjórn og málinu vísað til bæjarstjórnar.

Gögn hafa verið uppfærð í samræmi við fyrri athugasemdir ráðsins.

Niðurstaða
Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Hafnarsvæðis (H-1) og Miðsvæðis M-1 norðan Strandvegar skv. 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga 123/2010.

Erindi vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
A1718-001-U06 Strandvegur 44 - Deiliskipulagsbreyting greinargerð.pdf
A1718-002-U06 Strandvegur 44 - Deiliskipulagsbreyting -Uppráttur.pdf
A1718-003-U06 Áætlað skuggavarp.pdf
6. 202511136 - Erindi vegna efnisvinnslu á Haugasvæðinu
Erindi hefur borist frá Dýravinafélagi Vestmannaeyja þar sem lýst er yfir áhyggjum vegna fyrirhugaðarar efnisvinnslu á Haugasvæðinu þar sem hundasvæðið er. Lagðar eru fram spurningar varðandi fyrirhuguð efnistökuáform og mótvægisaðgerðum er varða hundasvæðið og svæði sem gæludýraeigendur hafa nýtt sem grafreit.

Niðurstaða
Ráðið þakkar bréfritara erindið og felur starfsfólki umhverfis- og framkvæmdasviðs að funda vegna málsins með Dýravinafélagi Vestmannaeyja.
Erindi frá Dýravinafélagi Vestmannaeyja vegna efnisvinnslu á hundasvæði.pdf
Fundargerðir
7. 202511004F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 71
Lagt fram.

Niðurstaða
Lagt fram.
7.1. 202504081 - Suðurgerði 12 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi
Tekið fyrir erindi lóðarhafa Suðurgerði 12. Páll Þór Guðmundsson sækir um leyfi til að byggja einbýlishús, í samræmi við framlögð gögn.

Stærðir: 337,9m², 1161,1m³.
Teikning: Eiríkur Vignir Pálsson

Grenndarkynning fór fram frá 23.05. - 20.06 2025. Engar athugasemdir bárust við grenndarkynningu.
Sam­þykkt. Nið­ur­staða af­greiðslufund­ar fel­ur í sér sam­þykkt bygg­ingaráforma í sam­ræmi við 11. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010. Óheim­ilt er að hefja fram­kvæmd­ir fyrr en bygg­ing­ar­full­trúi hef­ur gef­ið út bygg­ing­ar­leyfi í sam­ræmi við 13. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010.
7.2. 202510132 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Goðahraun 2 - Flokkur 2
Umsókn um byggingarleyfi á lóðinni Goðahraun 2.
Byggja á nýtt einbýlishús á nýrri einbýlishúsalóð þar sem áður var þvottaplan. Notað er áfram plan og veggir og sett niður fullbúið hús sem híft er á steyptar undirstöður.

Stærðir 272,6 m3.
Frestað.
Vísað til athugasemda.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15 

Til bakaPrenta