| |
| 1. 202509012 - Kirkjuvegur 23 - Umsókn um byggingarleyfi | Páll H. Zóphóníasson sækir um breyta tveimur íbúðum í þrjár á 4. hæð Kirkjuvegs 23 og að tekið sé mið af þeim gögnum og skýringum sem fram koma í tölvupósti frá hönnuði dags. 14.11.2025.
Sótt um undanþágu frá tilteknum ákvæðum byggingarreglugerðar nr. 112/2012, þar sem um er að ræða breytingar á byggingu sem reist var samkvæmt eldri reglugerðum. Við umfjöllun málsins er því tekið mið af gr. 12.8 reglugerðarinnar. | Niðurstaða Byggingarfulltrúi hefur farið yfir gögn málsins og skýringar hönnuðar dagsettar 14.11.2025, þar á meðal leiðrétta aðaluppdrætti og rökstuðning fyrir þeim atriðum sem snúa að undanþágu frá ákvæðum byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
Tekið er mið af því að húsið er reist árið 1967, samkvæmt eldri byggingarreglugerð. Með vísan til gr. 12.8 reglugerðar nr. 112/2012 er heimilt að líta til reglugerðarákvæða sem giltu þegar húsið var byggt, að því marki sem öryggis- og heilbrigðissjónarmið eru uppfyllt. Með hliðsjón af framlagðum gögnum og rökstuðningi hönnuðar er erindið samþykkt. | | |
|
| 2. 202505052 - Illugagata 69 - Umsókn um byggingarleyfi - bílskúr | Heiðrún Lára Jóhannsdóttir Illugagötu 69 leggur inn uppfærða aðaluppdrætti af bílgeymslu. Um er að ræða hækkun á bílskúrshurð með því að lækka gólfkóta bílskúrsins. Breytingin hefur ekki áhrif á hæðarkóta þaks bílskúrsins. Áfram er gert ráð fyrir þremur bílastæðum innan lóðar.
Stærðir: Bílgeymsla 56,5m². Teikning: Sigurður Smári Benónýsson | Niðurstaða Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til Skipulagsráðs með vísun í gr. 2.4.2. byggingarreglugerðar nr. 112/2012. | | |
|
| 3. 202407143 - Tangagata 10. Umsókn um byggingarleyfi | Sigurjón Pálsson leggur inn nýja aðaluppdrætti fyrir Tangagötu 10. Um er að ræða breytingu á skipulagi 3. hæðar, fjöldi íbúða fer úr fjórum í sex. Heildarfjöldi íbúða er innan þess sem deiliskipulag segir til um.
| Niðurstaða Erindi samþykkt. | | |
|
| 4. 202510132 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Goðahraun 2 - Flokkur 2 | Umsókn um byggingarleyfi á lóðinni Goðahraun 2.
Byggja á nýtt einbýlishús á nýrri einbýlishúsalóð þar sem áður var þvottaplan. Notað er áfram plan og veggir og sett niður fullbúið hús sem híft er á steyptar undirstöður. | Niðurstaða Erindi fylgja uppfærðar aðalteikningar. Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til Skipulagsráðs með vísun í gr. 2.4.2. byggingarreglugerðar nr. 112/2012. | | |
|