| |
| 1. 202507036 - Vesturvegur 25 - Umsókn um breytingu á deiliskipulagi | Lagðar eru fram uppfærðar teikningar fyrir Vesturveg 25. Erindið var tekið fyrir að lokinni grenndarkynningu á 426 fundi Umhverfis- og skipulagsráðs. Óskaði ráðið eftir þeim breytingum að svalir á suðurhlið yrðu minnkaðar og að dregið yrði úr umfangi þriðju hæðar hússins.
Skv. uppfærðum gögnum hafa svalir verið minnkaðar og dregið hefur verið úr umfangi þriðju hæðar með því að fella inn úthliðar, austur suður og vesturhliðar hæðarinnar.
Lögð er fram athugasemd frá þáverandi eigendum Vesturvegs 25B sem barst að loknum kynningartíma grenndarkynningar.
| Niðurstaða Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti að staðfesta tillögu að breyttu deiliskipulagi við Vesturveg 25.
Erindi vísað til bæjarstjórnar. | | Vesturvegur 25 - Breyting á deiliskipulagi 20251127.pdf | | Vesturvegur 25 - Breyting á deiliskipulagi 20250828.pdf | | Vesturvegur 25 - Athugasemdir Vesturvegur 25b efri hæð.pdf | | |
|
| 2. 202510132 - Goðahraun 2 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi | | Erindi vísað af 72. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa. Halldór Hjörleifsson fyrir hönd Hjölli múr ehf. sækir um byggingu 99,4 einbýlishúss á lóð við Goðahraun 2 þar sem áður var bílaþvottastöð. Húsið verður flutt á grunn á lóðinni. | Niðurstaða Ráðið felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna umsókn um byggingarleyfi við Goðahraun 2 skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | | Goðahraun 2 uppfærðar teikningar fyrir grenndarkynningu.pdf | | |
|
| 3. 202505052 - Illugagata 69 - Umsókn um byggingarleyfi - bílskúr | Erindi vísað af 72. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa. Heiðrún Lára Jóhannsdóttir sækir um að breyta teikningum sem áður höfðu verið grenndarkynntar fyrir viðbyggingu fyrir bílskúr við Illugagötu þannig að bílskúrshurð og lofthæð bílskúrs verði hærri, en að bílskúrinn verði grafinn niður þannig að hæðarkóti þaksins er óbreyttur frá því sem áður var sbr. meðfylgjandi teikningum. Hæð bílskúrshurðar verður 2,65 metrar. | Niðurstaða Ráðið samþykkir erindið og fellur frá grenndarkynningu sbr. 3. málsgrein 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. | | Illugagata 69 fyrir breytingar nóv 25.pdf | | Illugagata 69 eftir breytingar nóv 25.pdf | | |
|
| 4. 202510106 - Hrauntún 15 - Umsókn um stækkun á bílastæði | | Ingibjörg Bryngeirsdóttir sækir um stækkun bílastæðis við Hrauntún 15 sbr. innsend gögn. | Niðurstaða Ráðið hafnar erindinu þar sem nú þegar eru tvær innkeyrslur á lóð sem er hámarks fjöldi innan lóðar skv. vinnureglum frá árinu 2021 um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantsteina. Starfsmönnum sviðs falið að ræða við lóðarhafa. | | Umsókn um framkvæmdaleyfi.pdf | | Screenshot_20251021_200507_Chrome.pdf | | Screenshot_20251022_165345_Gallery.pdf | | Screenshot_20251022_165424_Gallery.pdf | | Screenshot_20251022_165629_Gallery.pdf | | |
|
| |
| 5. 202511009F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 72 | Niðurstaða Lagt fram. | 5.1. 202509012 - Kirkjuvegur 23 - Umsókn um byggingarleyfi Byggingarfulltrúi hefur farið yfir gögn málsins og skýringar hönnuðar dagsettar 14.11.2025, þar á meðal leiðrétta aðaluppdrætti og rökstuðning fyrir þeim atriðum sem snúa að undanþágu frá ákvæðum byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
Tekið er mið af því að húsið er reist árið 1967, samkvæmt eldri byggingarreglugerð. Með vísan til gr. 12.8 reglugerðar nr. 112/2012 er heimilt að líta til reglugerðarákvæða sem giltu þegar húsið var byggt, að því marki sem öryggis- og heilbrigðissjónarmið eru uppfyllt. Með hliðsjón af framlagðum gögnum og rökstuðningi hönnuðar er erindið samþykkt. | 5.2. 202505052 - Illugagata 69 - Umsókn um byggingarleyfi - bílskúr Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til Skipulagsráðs með vísun í gr. 2.4.2. byggingarreglugerðar nr. 112/2012. | 5.3. 202407143 - Tangagata 10. Umsókn um byggingarleyfi Erindi samþykkt. | 5.4. 202510132 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Goðahraun 2 - Flokkur 2 Erindi fylgja uppfærðar aðalteikningar. Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til Skipulagsráðs með vísun í gr. 2.4.2. byggingarreglugerðar nr. 112/2012. | | |
|
| 6. 202511011F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 17 | Niðurstaða Lagt fram. | 6.1. 202511204 - Goðahraun 3 - Umsókn um lóð Erindi samþykkt. Umsækjandi skal skila inn teikningum fyrir 27. maí 2026. | 6.2. 202511074 - Hraðhleðslustöðvar við Tangagtöru - Umsókn um framkvæmdaleyfi Erindi samþykkt. | | |
|
Sótt um undanþágu frá tilteknum ákvæðum byggingarreglugerðar nr. 112/2012, þar sem um er að ræða breytingar á byggingu sem reist var samkvæmt eldri reglugerðum. Við umfjöllun málsins er því tekið mið af gr. 12.8 reglugerðarinnar.