Til bakaPrenta
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 436

Haldinn í fundarsal Ráðhúss,
02.03.2026 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu: Jóna S. Guðmundsdóttir formaður,
Margrét Rós Ingólfsdóttir aðalmaður,
Jónatan Guðni Jónsson aðalmaður,
Jarl Sigurgeirsson aðalmaður,
Drífa Þöll Arnardóttir aðalmaður,
Dagný Hauksdóttir starfsmaður sviðs, Brynjar Ólafsson framkvstj.sviðs, Rannveig Ísfjörð starfsmaður sviðs.
Fundargerð ritaði: Dagný Hauksdóttir, skipulags-og umhverfisfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 202603007 - Breyting á deiliskipulagi við Hvítingaveg
Lagt fram til umræðu möguleg breyting á skipulagi við lóðir norðan við Hvítingaveg.

Niðurstaða
Ráðið felur skipulagsfulltrúa umsjón með gerð tillögu að breyttu Deiliskipulagi miðbæjar Vestmannaeyja við Hvítingaveg 9-13 sem felur í sér styttingu á götu norðan við húsin, stækkun á lóð og byggingarreit við Hvítingaveg 13 og stækkun á byggingarreit kjallara við Hvítingaveg 9-13.
2. 202505090 - Reglur um smáhýsi, skúra og garðveggi
Lögð eru fram drög að Vinnureglum um smáhýsi, garðveggi, skjólveggi og girðingar í Vestmannaeyjum.

Niðurstaða
Ráðið samþykkir vinnureglur um smáhýsi, skúra og garðveggi.
Erindi vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Drög_-_Vinnureglur_um_smáhýsi__garðveggi__skjólveggi_og_girðingar_í_Vestmannaeyjum.pdf
3. 202603008 - Lausir reitir fyrir íbúðarhúsnæði innan Aðalskipulags Vestmannaeyja 2015-2035
Lagt fram til umræðu lausir reitir þar sem mögulega væri hægt að skipuleggja lóðir fyrir íbúðarhúsnæði í samræmi við landnotkun og skilmála Aðalskipulags Vestmannaeyja 2015-2035.

Niðurstaða
Ráðið þakkar kynninguna.
Eftirspurn eftir lóðum fyrir íbúðarhúsnæði hefur verið mikil undanfarin ár og brýnt að huga að undirbúningi nýrra íbúðarhúsalóða. Skipulagsfulltrúa er falið að lista upp möguleika sem rúmast innan núverandi aðalskipulags.
4. 202212071 - Nýjabæjarbraut 2. Umsókn um byggingarleyfi
Erindi vísað af 77. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa. Ríkarður Tómas Stefánsson sækir um byggingarleyfi fyrir 235 fermetra einbýlishúsi við Nýjubæjarbraut 2.

Niðurstaða
Ráðið frestar afgreiðslu erindisins og felur byggingarfulltrúa að ræða við lóðarhafa varðandi breytingar á þakformi og bílastæðum.
Nýjabæjarbraut_2_2026.02.24_Aðaluppdráttur_101.pdf
Fundargerðir
5. 202602016F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 20
Lagt fram til staðfestingar.

Niðurstaða
Fundargerð staðfest.
5.1. 202601134 - Tillaga að breyttu Deiliskipulag Vesturbæjar - Goðahraun 28-34
Erindi tekið fyrir að lokinni grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Engar athugasemdir bárust.
Að loknu grenndarkynningarferli var byggingarreitur við Goðahraun 30 færður um einn metra frá lóðarmörkum til austurs, í þriggja metra fjarlægð frá lóðarmörkum.

Þar sem engar athugasemdir bárust er skipulagsfulltrúa falið að staðfesta tillögu að breyttu deiliskipulagi samkvæmt bæjarmálasamþykkt.
5.2. 202512111 - Deiliskipulag íþróttasvæðis við Hástein - breyting vegna flóðlýsingar við Hásteinsvöll
Erindi tekið fyrir að lokinni grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Engar athugasemdir bárust.
Þar sem engar athugasemdir bárust er skipulagsfulltrúa falið að staðfesta tillögu að breyttu deiliskipulagi samkvæmt bæjarmálasamþykkt.
5.3. 202602011 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Lagning ljósleiðara til fyrirtækja
Míla ehf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara til fyrirtækja á Athafnasvæði við Flatir, við Skipasand og á Eiði sbr. meðfylgjandi gögnum.
Erindi samþykkt. Verkinu skal að fullu lokið 31. maí 2026.

Lögð er áhersla á vandaðan frágang og að röskun á svæðinu verði með minnsta móti á framkvæmdatíma. Skal frágangur yfirborðs vinnast jafnt og þétt yfir framkvæmdatímann og skurðir ekki standa opnir lengur en nauðsynlegt er. Verkefnið telst ekki vera lokið fyrr en yfirborði sem nauðsynlegt er að raska vegna fyrirhugaðra framkvæmda hefur verið sett aftur í upprunalegt horf.

Ef umsækjandi hefur ekki gengið frá yfirborði með fullnægjandi hætti fyrir skilgreindan lokafrest áskilur Vestmannaeyjabær sér rétt til að ganga frá yfirborði á kostnað umsækjanda.

Ráðið áréttar að framkvæmdir skulu ekki dragast umfram veitt tímamörk og felur framkvæmdastjóra sviðsins eftirfylgd málsins.
6. 202602014F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 77
Lagt fram til staðfestingar.

Niðurstaða
Fundargerð staðfest.
6.1. 202506115 - Hásteinsvegur 13 - Umsókn um byggingarleyfi
Erindi tekið fyrir að lokinni grenndarkynningu. Kjartan Arnar Hauksson eigandi að Hásteinsvegi 13, sækir um byggingarleyfi fyrir bílgeymslu í samræmi við framlögð gögn.
Fyrir liggja samþykki nágranna aðliggjandi lóða.

Stærðir
Bílskúr: 81,0 m²

Teikning: Sigurður Smári Benónýsson
Sam­þykkt. Nið­ur­staða af­greiðslufund­ar fel­ur í sér sam­þykkt bygg­ingaráforma í sam­ræmi við 11. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010. Óheim­ilt er að hefja fram­kvæmd­ir fyrr en bygg­ing­ar­full­trúi hef­ur gef­ið út bygg­ing­ar­leyfi í sam­ræmi við 13. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010.
6.2. 202212071 - Nýjabæjarbraut 2. Umsókn um byggingarleyfi
Ríkarður Tómas Stefánsson sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishús við Nýjabæjarbraut 2. Um er að ræða hús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Stærðir: 235,2 m2 og 778,2 m3 Teikning: Björgvin Björgvinsson
Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til Skipulagsráðs með vísun í gr. 2.4.2. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:38 

Til bakaPrenta