Til bakaPrenta
Bæjarráð Vestmannaeyja - 3249

Haldinn í Ráðhúsinu,
25.11.2025 og hófst hann kl. 08:00
Fundinn sátu: Njáll Ragnarsson formaður,
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir varaformaður,
Eyþór Harðarson aðalmaður,
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Drífa Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 202504032 - Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2026
-Seinni umræða-

Bæjarstjóri lagði fram fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 og fór yfir breytingar milli umræðna.

Niðurstaða
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun 2026 til seinni umræðu í bæjarstjórn.
2. 202510110 - Þriggja ára fjárhagsáætlun 2027-2029
-Seinni umræða-

Bæjarstjóri lagði fram þriggja ára fjárhagsáætlun 2027-2029 fyrir seinni umræðu í bæjarstjórn.

Niðurstaða
Bæjarráð vísar þriggja ára fjárhagsáætlun 2027-2029 til seinni umræðu í bæjarstjórn.
3. 202410002 - Almannavarnarlögn NSL4
Óska þarf eftir viðauka til bæjarráðs fyrir Vatnsveitu Vm. vegna greiðslna upp í almannavarnalögn NSL4 þar sem mótframlag ríkisisins berst í lok árs.
Viðaukinn liggur fyrir í 5. dagskrárlið.
4. 202410109 - Könnun á fýsileika jarðganga milli lands og Eyja
Óskað hefur verið eftir aðkomu Vestmannaeyjabæjar að félagi sem til stendur að stofna í þeim tilgangi að fjármagna rannsóknir á jarðlögum fyrir Eyjagöngum. Forsvarsmenn félagsins hafa kynnt áformin fyrir bæjarstjórn. Stofnframlag Vestmannaeyjabæjar er allt að 30 m.kr. sem þarf að fjármagna með viðauka verði Vestmannaeyjabær aðili að félaginu.
Viðaukinn liggur fyrir í 5. dagskrárlið.

Niðurstaða
Bæjarráð samþykkir samhljóða að taka þátt í þessu verkefni, eins og það hefur verið kynnt, sem er framhald af vinnu starfshóps innviðaráðherra um fýsileika jarðganga. Bæjarráð áréttar mikilvægi þess að verkefnið sé áfram unnið í samvinnu við Vegagerðina og innviðaráðuneyti. Framlag Vestmannaeyjabæjar verður lagt fram eftir nánara samkomulagi við stofnun félagsins þegar stofnaðilar og samþykktir þess liggja fyrir.
5. 202502131 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025
Viðauki 8 lagður fram til samþykktar. Um er að ræða 570 m.kr. fjárfestingarviðauka vegna greiðslna til NOV vegna kaupa á almannavarnalögn NSL4. Viðaukinn er fjármagnaður með handbæru fé.

Viðauki 9 lagður fram til samþykktar. Um er að ræða 30 m.kr. fjárfestingarviðauka sem stofnfé í félagi sem mun rannsaka jarðlög fyrir Eyjagöngum. Viðaukinn er fjármagnaður með handbæru fé.

Niðurstaða
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka 8 og 9.
6. 202511150 - Skerðanlegur flutningur Landsnets fellur niður um áramót
HS Veitur hafa tilkynnt um að allt bendi til að skerðanlegur taxti rafmagnsflutnings í Eyjum falli niður frá og með næstu áramótum. Við muni taka taxti forgangsflutnings í samræmi við gjaldskrá Landsnets. Bæjarstjóri hefur sent HS Veitum erindi og óskað eftir upplýsinum um hvað þetta þýðir fyrir sveitarfélagið. Svörin eru þau að þetta mun hafa veruleg áhrif á Herjólf og á húshitunarkostnað þar sem HS Veitur kaupa rafmagn á skerðanlegum flutningi og mun hækkun skila sér út í verðskrá HS Veitna komi ekki til nýir taxtar hjá Landsneti í stað skerðanlega flutningsins.

Niðurstaða
Bæjarráð leggur þunga áherslu á að í boði verði hagstæðari taxtar fyrir fjarvarmaveitu og hleðslustöðvar Herjólfs þar sem skerðanlegir flutningstaxtar falla út um áramót.
7. 202511153 - Samningur um Herjólf
Samningur um Herjólf rennur út 31. desember 2026 en hægt er að framlengja hann um tvö ár eða til 31.12.2028. Sveitarfélagið þarf að senda tilkynningu til ríkisins í janúar 2026 óski það eftir að framlengja samninginn um þessi tvö ár.

Niðurstaða
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra að óska eftir framlengingu á samningnum fyrir hönd sveitarfélagsins. Málinu er vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.
8. 202511044 - Umbætur til hagræðingar
Framhald af 8. máli 3248. fundar bæjarráðs þann 12. nóvember 2025. Framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs var falið að leggja fyrir bæjarráð tillögur um fyrirkomulag og skipan hópa sem mun skoða leiðir til hagræðinga á sviðum sveitarfélagsins.

Framkvæmdastjóri lagði til tvo stýrihópa, annars vegar stýrihóp sem skoðar hagræðingarleiðir á umhverfis- og framkvæmdasviði og hins vegar hóp sem skoðar hagræðingarleiðir á stjórnsýslu- og fjármálasviði og fjölskyldusviði.

Tillaga framkvæmdastjóra er að í stýrihópi fyrir umhverfis- og framkvæmdasvið verði Brynjar Ólafsson, framkvæmdastjóri sviðsins, Rannveig Ísfjörð, byggingarfulltrúi, Dóra Björk Gunnarsdóttir, hafnarstjóri, Helga Jóhanna Harðardóttir, aðalmaður í framkvæmda- og hafnarráði og Margrét Rós Ingólfsdóttir, varaformaður í umhverfis- og skipulagsráði.

Fyrir stjórnsýslu- og fjármálavið og fjölskyldusvið verði Drífa Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs, Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs, Silja Rós Guðjónsdóttir, umsjónarfélagsráðgjafi, Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, Hrefna Jónsdóttir, formaður fjölskyldu og tómstundaráðs og Gísli Stefánsson, varaformaður í fjölskyldu- og tómstundaráði.

Niðurstaða
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu framkvæmdastjóra og felur honum að útbúa erindisbréf fyrir stýrihópana.
9. 202509038 - Lóðir í Mosfellsbæ
Framhald af 16. máli 3245. fundi bæjarráðs þann 29. september 2025. Bæjarráð fól framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að kanna sölu á lóðunum Furulundi 15 og 29 í Mosfellsbæ sem eru í eigu Vestmannaeyjabæjar.

Framkvæmdastjóri sendi bæjarráði Mosfellsbæjar erindi til að kanna áhuga Mosfellsbæjar á að kaupa lóðirnar. Svar barst frá bæjarráði þann 20. nóvember sl. Ráðið samþykkti að bjóða Vestmannaeyjabæ að kaupa lóðirnar og að kaupverð hvorrar lóðar nemi því fasteignamati sem lægra er.

Niðurstaða
Bæjarráð telur ekki ástæðu til að selja lóðirnar á því verði sem Mosfellsbær er tilbúinn að greiða fyrir þær. Lóðirnar verða því áfram í eigu Vestmannaeyjabæjar.
Svarbréf bæjarráðs Mosf.bæjar.pdf
10. 202511142 - Beiðni Þekkingarseturs um endurskoðun á leigusamningi
Minnisblað frá Þekkingarsetri tekið til umfjöllunar. Óskað er eftir því að leigusamningur milli Vestmannaeyjabæjar og Þekkingarseturs verði endurskoðaður vegna breyttra forsendna.

Niðurstaða
Ráðið getur ekki samþykkt tillögurnar eins og þær koma fram í minnisblaðinu. Í ljósi stöðunnar telur bæjarráð að skoða þurfi möguleikann á sölu á 2. og 3. hæð Ægisgötu 2. Framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs og framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs er falið að eiga viðræður við stjórn Þekkingarsetursins um mögulega lausn til að létta undir með rekstrinum þar til ákvörðun um framtíð hússins verður ljós.
Minnisblað 30.10.2025.pdf
11. 202511149 - Viðauki við samning um rekstur náttúrustofu 2026
Viðauki við samning Vestmannaeyjabæjar og umhverfis- og auðlindarráðuneytis um rekstur Náttúrustofu Suðurlands lagður fram þar sem gildistími núgildandi samnings er framlengdur til loka árs 2026. Aðrar breytingar eru ekki gerðar á samningnum.

Niðurstaða
Bæjarráð samþykkir viðaukann samhljóða.
Náttúrustofa_Suðurlands_viðauki_2026.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:10 

Til bakaPrenta