| |
| 1. 201212068 - Umræða um samgöngumál | Bæjarstjóri fór yfir stöðuna í samgöngumálum, samskiptin við ráðherra og Vegagerðina.
Samgöngur til Vestmannaeyja eru einfaldlega óásættanlegar í dag. Og þetta er ekki nýtt vandamál, en þetta ástand hefur varað allt of lengi.
Klára þarf Landeyjahöfn þannig að hún virki eins og Eyjamönnum var lofað. Þær tillögur að breytingum sem DHI hefur verið að vinna að verða kynntar á næstu vikum, og það er algjört lykilatriði að stjórnvöld tryggi fjármagn í þær strax. Ekki seinna, heldur núna.
Bilunin í Herjólfi IV bætist ofan á það ástand sem verið hefur í Landeyjahöfn.
Herjólfur III var ekki tilbúinn og því ekki hægt að fá hann til Eyja fyrr en í næstu viku.
Jan De Null tekur við dýpun í september og verður með samning í 3 ár.
Ríkistjórnin ræddi málin í gær og yfirlýsingar frá innviðaráðuneytinu síðdegis í gær. Halda þarf áfram og við þurfum meira til.
Sameiginleg tillaga bæjarstjórnar um milliliðalaust samtal ráðamanna og íbúa liggur fyrir fundinum. | Niðurstaða Við umræðu um málið tóku til máls: Íris Róbertsdóttir, Eyþór Harðarson, Njáll Ragnarsson, Hildur Sólveig Sigurðardóttir og Páll Magnússon
Sameiginleg tillaga bæjarfulltrúa
Samtal Eyjamanna við stjórnvöld.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja boðar til opins fundar um það ófremdarástand sem verið hefur undanfarna mánuði í samgöngumálum Eyjamanna. Dýpkun hefur ekkert gengið og höfnin enn lokuð. Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt í Landaeyjahöfn síðan nýr Herjólfur var tekin í notkun árið 2019.
Ofan á allt annað bætist við bilun í Herjólfi þannig að siglingin milli Eyja og Þorlákshafnar getur tekið allt að sex klukkustundir; tvöfalt lengri tíma en venjulega. Þetta hefur verulega áhrif á íbúa, atvinnulíf og grunnþjónustu í Vestmannaeyjum.
Engin hentug varaferja er tilbúin í landinu til að bregðast við svona aðstæðum og engin viðbragðsáætlun til staðar.
Bæjarstjórn telur mikilvægt að skapa vettvang fyrir opið og uppbyggilegt samtal við stjórnvöld þar sem farið verið yfir stöðuna, ábyrgð og framtíðarlausnir.
Til fundarins verða sérstaklega boðuð:
Innviðaráherra
Formenn stjórnmálaflokka
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis
Þingmenn Suðurkjördæmis
Vegamálastjóri
Það þarf ekki að taka fram að stjórnvöldum ber lagaskylda til að sjá Vestmannaeyingum fyrir nothæfum og öruggum samgöngum eins og öðrum landsmönnum.
Fundurinn fer fram í Höllinni mánudaginn 4. maí kl.17:30.
Tillaga samþykkt með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.
| | |
|
| 2. 202410002 - Almannavarnarlögn NSL4 | Framleiðsla hófst þann 10. apríl síðastliðinn á innsta lagi NSL-4 hjá NOV í Kalundborg, Danmörku. Áætlað er að næsta lag í lögninni fari af stað 2. maí. Útlagning á NSL-4 er síðan áætluð í júlí/ágúst
Samtal er í gangi við innnviðaráðuneytið um fjármögnun lagnarinnar. Þegar búið verður að leggja almannavarnalögnina er hægt að huga að viðgerð á NSL-3 sem tjónaðist í nóvember 2023. | Niðurstaða Við umræðu um málið tóku til máls: Íris Róbertsdóttir og Eyþór Harðarson | | |
|
| 3. 202604025 - Kjörtímabilið 2022-2026 | Niðurstaða Við umræðu um málið tóku til máls: Helga Jóhanna Harðardóttir, Hildur Sólveig Sigurðardóttir, Gísli Stefánsson, Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, Íris Róbertsdóttir og Páll Magnússon | | |
|
| |
| 4. 202603010F - Fræðsluráð Vestmannaeyja - 404 | | Liðir 4.1-4.5 liggja fyrir til upplýsinga. | | |
|
| 5. 202604002F - Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 334 | | Liðir 5.1-5.11 liggja fyrir til upplýsinga. | | |
|
| 6. 202603012F - Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja - 327 | | Liðir 6.1-6.4 liggja fyrir til upplýsinga. | | |
|
| 7. 202604003F - Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 438 | Liður 7.1, Deiliskipulag við Rauðagerði, liggur fyrir til staðfestingar. Tillaga um breytt deiliskipulag.
Liður 7.2, AT-2-skipulagsbreytingar, liggur fyrir til staðfestingar. Tillaga um breytt aðalskipulag.
Liðir 7.3-7.12 liggja fyrir til upplýsinga. | Niðurstaða Liður 7.1 samþykktur með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.
Liður 7.2 samþykktur með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.
LIÐIR ÚR FUNDARGERÐ UMHVERFIS- OG SKIPULAGSRÁÐS | 7.1. 202308109 - Deiliskipulag við Rauðagerði Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að breyttu Deiliskipulagi við Rauðagerði.
Skipulagsfulltrúa er falið að uppfæra byggingarreit fyrir bílskúr við Boðaslóð 7 í samræmi við samkomulag lóðarhafa við Boðaslóð 5 og 7.
Erindi vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. | 7.2. 202308082 - AT-2 - skipulagsbreytingar Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að breyttu Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 vegna breyttrar skilgreiningar landnotkunarreitar Athafnasvæðis AT-2 í Iðnaðarsvæði.
Ráðið tekur undir að vandað sé til verks varðandi skeringar, frágang og umgengni á svæðinu og verða skilmálar þess efnis skilgreindir í deiliskipulagi.
Erindi vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. | | |
|
| 8. 202604009F - Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 335 | | Liður 8.1 liggur fyrir til upplýsinga. | | |
|
| 9. 202604006F - Bæjarráð Vestmannaeyja - 3258 | Liður 9.2, Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027, liggur fyrir til staðfestingar.
Liður 9.5, Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026, liggur fyrir til staðfestingar.
Liður 9.6, Íþróttamiðstöð viðbygging, liggur fyrir staðfestingar.
Liður 9.7, Uppbygging og rekstur heilsuræktar við Íþróttamiðstöð Vm., liggur fyrir til staðfestingar.
Liður 9.8, Ægisgata 2, liggur fyrir til staðfestingar.
Liðir 9.1, 9.3-9.4 og 9.9-9.22 liggja fyrir til upplýsinga.
| Niðurstaða Liður 9.2 samþykktur með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.
Liður 9.5 samþykktur með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.
Við umræðu undir lið 9.6 tók til máls: Njáll Ragnarsson, Eyþór Harðarson, Hildur Sólveig Sigurðardóttir, Helga Jóhanna Harðardóttir og Gísli Stefánsson
HLÉ GERT Á FUNDI KL. 15:42-15:57
Liður 9.6 samþykktur með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.
Liður 9.7 samþykktur með sjö atkvæðum bæjarfulltrúa. Tveir bæjarfulltrúar D lista sátu hjá.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir gerði grein fyrir hjásetu.
Eyþór Harðarson gerði grein fyrir atkvæði sínu.
Liður 9.8 samþykktur með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.
LIÐIR ÚR FUNDARGERÐ BÆJARRÁÐS | 9.2. 202604018 - Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027 Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög með fyrirvara um breytingar. | 9.5. 202602030 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka 3 og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka 4 og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
| 9.6. 202601100 - Íþróttamiðstöð viðbygging Bæjarráð samþykkir samhljóða að taka tilboði lægstbjóðanda og vísar samningi til staðfestingar í bæjarstjórn þegar hann liggur fyrir. | 9.7. 202503105 - Uppbygging og rekstur heilsuræktar við Íþróttamiðstöð Vm. Bæjarráð gerir ekki athugsemd við drög samningsins og vísar samningi til bæjarstjórnar til staðfestingar. | 9.8. 202403033 - Ægisgata 2 Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tilboð fyrir sitt leyti og er bæjarstjóra falið að undirrita það með fyrirvara um staðfestingu bæjarstjórnar. | | |
|
| 10. 202604007F - Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja - 328 | | Liður 10.1 liggur fyrir til upplýsinga. | | |
|
| 11. 202604008F - Fræðsluráð Vestmannaeyja - 405 | | Liðir 11.1-11.4 liggja fyrir til upplýsinga. | | |
|
| 12. 202604013F - Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 336 | | Liður 12.1 liggur fyrir til upplýsinga. | | |
|
Þrjár umsagnir bárust frá umsagnaraðilum varðandi málið en engin þeirra gerir athugasemd við deiliskipulagið.
Fyrirspurn hefur borist frá lóðarhöfum við Boðaslóð 7 um að byggingarreit bílskúrs verði breytt og hann færður í lóðarmök við Boðaslóð 5 en samkomulag hefur náðst milli lóðarhafa um staðsetningu bílskúrsins í lóðarmökum.