Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 78

Haldinn í kjallara Ráðhúss,
12.03.2026 og hófst hann kl. 13:30
Fundinn sátu: Dagný Hauksdóttir starfsmaður sviðs, Rannveig Ísfjörð starfsmaður sviðs, Brynjar Ólafsson framkvstj.sviðs.
Fundargerð ritaði: Rannveig Ísfjörð, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 202601066 - Strandvegur 30 - Umsókn um byggingarleyfi
Erindi tekið fyrir að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust.
Miðstöðin Vestmannaeyjum ehf. sækir um byggingarleyfi til að koma fyrir vöruhurð á 2. hæð austurhliðar við Bárustíg og færa neyðarútgang, björgunarop og fellistiga á sömu hæð norðar miðað við áður samþykkta uppdrætti.

Teikning: Páll Hjaltdal Zóphóníasson

Niðurstaða
Sam­þykkt. Nið­ur­staða af­greiðslufund­ar fel­ur í sér sam­þykkt bygg­ingaráforma í sam­ræmi við 11. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010. Óheim­ilt er að hefja fram­kvæmd­ir fyrr en bygg­ing­ar­full­trúi hef­ur gef­ið út bygg­ing­ar­leyfi í sam­ræmi við 13. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010.
2. 202511069 - Strandvegur 65 - Umsókn um byggingarleyfi
Erindi tekið fyrir að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust.
SV65 ehf. sækir um breytta notkun á húsnæði við Strandveg 65. Um er að ræða breytingar á 2. og 3. hæð hússins þar sem áður var líkamsræktarstöð í níu vinnustofur. Gengið er inn í þær upp stiga frá 1. hæð. Í hverri vinnustofu er gert ráð fyrir eldunaraðstöðu og salerni með sturtu. Svölum hefur verið bætt við frá vinnustofum.
Sótt er um frávik frá kröfum um algilda hönnun á grundvelli 6.1.5 gr. byggingarreglugerðar vegna sérstaka erfiðleika við útfærslu í eldra húsi.

Stærðir
Flatarmál húss: 1032,0 m2

Niðurstaða
Sam­þykkt. Nið­ur­staða af­greiðslufund­ar fel­ur í sér sam­þykkt bygg­ingaráforma í sam­ræmi við 11. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010. Óheim­ilt er að hefja fram­kvæmd­ir fyrr en bygg­ing­ar­full­trúi hef­ur gef­ið út bygg­ing­ar­leyfi í sam­ræmi við 13. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010.
3. 202104078 - Sólhlíð 4. Umsókn um byggingarleyfi - fjölbýlishús með bílakjallara
Samúel Smári Hreggviðsson leggur inn breytta aðaluppdrætti fyrir Sólhlíð 4. Breytingar eru gerðar á byggingarlýsingu og brunavarnarlýsingu, auk minni háttar uppfærslna á teikningum.

Niðurstaða
Erindi samþykkt með fyrirvara að brugðist verði við athugasemdum.
4. 202601128 - Dverghamar 27-29 -Umsókn um byggingarleyfi
Valur Andersen sækir um byggingarleyfi til að byggja raðhús við Dverghamar 27-29.
Um er að ræða tvær íbúðir ásamt innbyggðum bílskúrum.

Stærðir: 417,8 m2, 1351,2 m3
Teikning: Sigurjón Pálsson

Niðurstaða
Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til Skipulagsráðs með vísun í gr. 2.4.2. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
5. 202603015 - Listaverk á Eldfellshrauni - Umsókn um byggingarleyfi 202603020
Björgvin Björgvinsson sækir um byggingarleyfi fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar fyrir byggingu á undirstöðum fyrir listaverk Ólafs Elíassonar. Teikningar eru í samræmi við gildandi deiliskipulag Eldfellshrauns og undirstöður innan byggingarreits.

Teikning: Björgvin Björgvinsson

Niðurstaða
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
6. 202506052 - Brimhólabraut 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Erindi tekið fyrir að lokinni grenndarkynningu, engar athugasemdir bárust.
Sigurður Björn Oddgeirsson eigandi að Brimhólabraut 2 sækir byggingarleyfi fyrir bílgeymslu og studíóíbúð.
Stærðir:
Bílgeymsla: 31m2
Stúdíóíbúð: 26,5m2
Teikning: Sigurður Smári Benónýsson

Niðurstaða
Sam­þykkt. Nið­ur­staða af­greiðslufund­ar fel­ur í sér sam­þykkt bygg­ingaráforma í sam­ræmi við 11. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010. Óheim­ilt er að hefja fram­kvæmd­ir fyrr en bygg­ing­ar­full­trúi hef­ur gef­ið út bygg­ing­ar­leyfi í sam­ræmi við 13. gr. laga um mann­virki nr. 160 / 2010.
7. 202603016 - Fjólugata 21 - frestur vegna smáhýsis
Andrea Rún Magnúsdóttir sækir um frest til 1. september 2026 til að klára að ganga frá smáhýsi á lóð við Fjólugötu 21 eða fjarlægja.

Niðurstaða
Erindi samþykkt, frestur veittur til 1. september 2026.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:20 

Til bakaPrenta