Til bakaPrenta
Bæjarráð Vestmannaeyja - 3256

Haldinn í Ráðhúsinu,
11.03.2026 og hófst hann kl. 08:00
Fundinn sátu: Njáll Ragnarsson formaður,
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir varaformaður,
Eyþór Harðarson aðalmaður,
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Drífa Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 202603001 - Ársreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2025
-Fyrri umræða-

Sigurjón Örn Arnarson og Guðbjörg Erla Ríkharðsdóttir, fulltrúar KPMG, kynntu drög að ársreikningi Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2025 og var bæjarfulltrúum boðið að sitja fundinn undir þessum lið.

Niðurstaða
Bæjarráð þakkar fulltrúum KPMG fyrir yfirferðina og vísar ársreikningi Vestmannaeyjabæjar og stofnana fyrir árið 2025 til fyrri umræðu í bæjarstjórn síðar í dag.

Gestir:
Sigurjón Örn Arnarson, fulltrúi KPMG
Guðbjörg Erla Ríharðsdóttir, fulltrúi KPMG
Sigurjón Örn Lárusson, fjármálastjóri Vestmannaeyjabæjar
Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar
Helga Jóhanna Harðardóttir, varaforseti bæjarstjórnar
Gísli Stefánsson, bæjarfulltrúi
Hildur Sólveig Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi
Margrét Rós Ingólfsdóttir, bæjarfulltrúi
2. 202410002 - Almannavarnarlögn NSL4
Samkvæmt greiðsluplani með útboði þarf að greiða kr. 105.800.000 til SubSea7 sem sér um flutning og útlagningu almannavarnarlagnar NSL4 sem áætlað er að verði lögð í ágúst á þessu ári. Ekki var gert ráð fyrir þessari upphæð í fjárheimildum fyrir árið 2026 vegna þess að bæjarstjórn telur að almannavarnir séu á hendi ríkisins og það sé ríkisins að greiða fyrir þær. Það samtal er í gangi við ríkið en í millitíðinni þarf Vestmannaeyjabær að tryggja það að greiðsluplani sé fylgt og er því óskað eftir viðauka.

Viðaukinn er til afgreiðslu í lið 3.
3. 202602030 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Viðauki 2 að fjárhæð kl. 105.800.000 vegna almannavarnarlagnar NSL4 lagður fram til samþykktar. Um er að ræða fjárfestingarviðauka sem fjármagnaður er með handbæru fé.

Niðurstaða
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka 2.
4. 202312065 - Kvika Banki - eignasafn
Sérfræðingar Kviku banka fóru yfir ávöxtun sjóðsins á árinu 2025 með bæjarráði þann 19. febrúar sl. Samkvæmt því sem fram kom var ávöxtun sjóðsins 7,4% á tímabilinu 1.1.2025-1.1.2026

Kvika hefur verið að skila næst bestu ávöxtun á árinu 2025 en af stóru sjóðunum hafa þeir verið að skila bestu ávöxtun. Hluti af handbæru fé sveitarfélagsins er í sjóðnum Ægisdyr sem vistaður er hjá Kviku banka.
5. 202603004 - Landsbankinn nýtir heimild til kaupa á eigin hlutum í bankanum
Landsbankinn nýtir heimild til kaupa á eigin hlutum í bankanum og gefst hluthöfum kostur á að selja hluti sína til Landsbankans á bilinu 2.-13. mars 2026. Bæjarráð ræddi málið.

Niðurstaða
Bæjarráð samþykkir samhljóða að selja hlutinn (0,02%) fáist fyrir hann ásættanlegt verð. Sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs er falið að vinna að framgangi málsins í samráði við bæjarráð.
6. 202403126 - Menningarstefna Vestmannaeyjabæjar
Sigurhanna Friðþórsdóttir, verkefnastjóri kynnti drög að menningarstefnu Vestmannaeyjabæjar.

Niðurstaða
Bæjarráð þakkar kynninguna og vísar stefnunni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
7. 202410098 - Samningur um hönnun viðbyggingar við Íþróttamiðstöð Vestm.
Framhald af 6. máli 3254. fundar bæjarráðs þann 18. febrúar 2026. Vegna þeirra miklu tafa sem eru á hönnunarferli viðbyggingar við Íþróttamiðstöð fól bæjarráð sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að kalla eftir skýrri og tímasettri áætlun frá TPZ um skil á fullnægjandi hönnunargögnum.

Samkvæmt sviðsstjóra eru hönnunargögnin tilbúin og farið var yfir þau í framkvæmda- og hafnarráði og þau samþykkt. Útboðið er komið í auglýsingu og verða tilboð opnuð 14. apríl.
8. 202603002 - Erindi frá Þresti B. Johnsen, áhrif gatnagerðar á rekstur Alþýðuhúss
Tekið fyrir Erindi frá Þresti B. Johnsen. Telur hann sig hafa orðið fyrir rekstrarskaða af hendi sveitarfélagsins vegna gatnagerðar austan við Alþýðuhús og fer hann fram á skaðabætur sem hann hefur reiknað og að þær verði skuldajafnaðar upp í fasteignagjöld.

Niðurstaða
Bæjarráð telur ekki forsendur til að verða við erindinu. Almenn framkvæmd gatnagerðar, sem er lögbundið verkefni sveitarfélaga, leiðir ekki, ein og sér, til bótaskyldu af hálfu sveitarfélagsins og er því ekki fallist á kröfu um skaðabætur eða skuldajöfnun þeirra upp í fasteignagjöld.
Tölvupóstsamskipti ÞJ.pdf
9. 202603005 - Áskorun frá Siglingasambandi Íslands
Áskorun til sveitarstjórna af 53. Siglingaþingi Siglingasambands Íslands lögð fram til kynningar.
Askorun til sveitastjórna.pdf
10. 202601165 - Fundargerðir til kynningar 2026
Fundargerðir samtaka, nefnda og ráða lagðar fram til kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 993.pdf
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 994.pdf
Fundargerd-Herjolfs-nr-151.pdf
H-ohf-nr.-152.pdf
Fundargerd-Natturustofu-Sudurlands.pdf
Fundargerd-Eygloar-19.01.26.pdf
Fundargerð Eyglóar_09032026.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:40 

Til bakaPrenta