Til bakaPrenta
Fræðsluráð Vestmannaeyja - 400

Haldinn Í fundarsal Fjölskyldu- og fræðslusviðs við Kirkjuveg,
20.11.2025 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu: Aníta Jóhannsdóttir formaður,
Hafdís Ástþórsdóttir aðalmaður,
Hildur Sólveig Sigurðardóttir varaformaður,
Ellert Scheving Pálsson aðalmaður,
Halla Björk Hallgrímsdóttir aðalmaður,
Jón Pétursson framkvstj.sviðs, Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir starfsmaður sviðs, Helga Björk Ólafsdóttir , Helga Sigrún Þórsdóttir embættismaður, Einar Gunnarsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Helga Sigrún Í. Þórsdóttir, deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála
Björg Þórðardóttir áheyrnarfulltrúi foreldra á leikskóla sat fundinn.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 202504032 - Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2026
Almenn umræða um fjárhagsáætlunarvinnuna 2026 og helstu þætti málaflokka ráðsins þ.e. skólaskrifstofu, grunnskóla, leikskóla, tónlistarskóla og frístund. Framkvæmdastjóri fór yfir helstu forsendur fjárhagsáætlunargerðar 2026 og ræddi almennt um stöðu málaflokka ráðsins.

Niðurstaða
Ráðið þakkar kynninguna.
2. 201208006 - Skólamáltíðir
Framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs fór yfir stöðu mála varðandi skólamáltíðir. Sami umsjónaraðili hefur boðið upp á heitar skólamáltíðir allt frá árinu 2008 og hefur verið almenn ánægja með þjónustu hans. Fyrir árið 2008 var allur matur eldaður í leikskólum bæjarins en í grunnskólanum var áður boðið upp á spónamat og brauð. Áhersla bæjarins er að bjóða upp á heita skólamáltíð bæði í leik- og grunnskóla sem uppfyllir kröfur lýðheilsumála um gæði og hollustu. Einnig hefur verið lagt upp með að máltíðin sé elduð í Eyjum af aðilum sem hafa til þess leyfi, aðstöðu og þekkingu. Árið 2024 var boðið upp á yfir 120 þúsund skammta af skólamáltíðum í leik- og grunnskólum Vestmannaeyjabæjar. Í kjölfar þess að fæði í grunnskólunum varð gjaldfrjálst hefur kostnaður og áhyggjur af sóun aukist og eðlilegt að yfirfara stöðuna.
Samkvæmt innkaupareglum bæjarins þarf að bjóða út reglulega slíka þjónustu. Óformlegar kannanir í gegnum árin hafa skilað þeirri niðurstöðu að ekki voru aðrir aðilar tilbúnir að bjóða í þessa þjónustu. Nú hafa forsendur breyst og leggur framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs til að farið verði í útboð á þessari þjónustu. Lagt er til að tímasetning á þeirri framkvæmd og útboðsskilmálar verði ákveðnir í samráði við skólastjórnendur og taki mið af því sem hentar skólastarfinu í leik- og grunnskóla.


Niðurstaða
Ráðið þakkar kynninguna og samþykkir umrædda tillögu.
3. 202309120 - Gjaldskrá leikskóla
Skýrsla starfshóps, sem skipaður var af fræðsluráði til að vinna að tillögum að breytingum á gjaldskrá leikskóla og vinnudegi barna í leikskólum, lögð fram til kynningar og staðfestingar ráðsins.
Í starfshópnum voru starfsmenn, formaður fræðsluráðs, einn bæjarfulltrúi frá hverjum lista sem á sæti í bæjarstjórn og fulltrúar frá hagaðilum.
Við vinnuna var sérstaklega horft til þess hvernig stytta mætti vinnudag barnanna og í því skyni horft til annarra sveitarfélaga með útfærslur sem gefist hafa vel. Starfshópurinn hefur farið yfir tillögurnar með fulltrúum foreldra í foreldraráðum og foreldrafélögum leikskóla og fulltrúum stéttarfélaga.

Niðurstaða
Ráðið þakkar kynninguna og starfshópnum fyrir vandaða og faglega vinnu.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi drög með tillögum og gjaldskrá og vísar málinu til bæjarstjórn til staðfestingar. Skýrsla faghópsins verður gerð opinber þegar staðfesting bæjarstjórnar liggur fyrir og í kjölfarið er stefnt að því að halda kynningu fyrir foreldra leikskólabarna.
Gjaldskra_Lokaskjal2025.pdf
Ný gjaldskrá 01. janúar 2026.pdf
4. 201304035 - Skóladagatal. Skráningardagar í leikskólum.
Deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála kynnti tillögu um breytingar á skráningardögum í leikskólum. Lagt er til að bæta við tveimur skráningardögum, á þorláksmessu og 2. janúar, þar sem nýting þessara daga hefur verið lítil síðustu ár. Tekið skal fram að þjónustan verður opin fyrir þau börn sem verða skráð í vistun. Með skráningu geta stjórnendur leikskólanna séð hversu mörg börn mæta og hagað starfsmannahaldi og matarmálum í samræmi við það.

Niðurstaða
Ráðið þakkar kynninguna og samþykkir tillöguna.
5. 201801005 - Grunnskóli Vestmannaeyja
Skólastjórnendur kynntu hvernig lokun sundlaugar hefur áhrif á sundkennslu og hvernig fyrirkomulag sundkennslu er háttað á meðan innisundlaug er lokuð.

Niðurstaða
Ráðið þakkar kynninguna og vonast til hefðbundin sundkennsla geti hafist sem fyrst.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:30 

Til bakaPrenta