Til bakaPrenta
Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 334

Haldinn í fundarsal Ráðhúss,
09.04.2026 og hófst hann kl. 15:00
Fundinn sátu: Erlingur Guðbjörnsson formaður,
Arnar Richardsson aðalmaður,
Hannes Kristinn Sigurðsson varaformaður,
Ragnheiður Sveinþórsdóttir aðalmaður,
Sveinn Rúnar Valgeirsson 1. varamaður,
Dóra Björk Gunnarsdóttir starfsmaður sviðs, Brynjar Ólafsson framkvstj.sviðs.
Fundargerð ritaði: Brynjar Ólafsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 202310093 - Landfylling Eiði
Farið var í verðkönnun og barst eingöngu eitt tilboð í verkið frá Þjótanda að upphæð 35.688.440 með vsk. Starfsmenn hafnarinnar munu sjá um að girða svæðið af og hefur sá liður verið tekinn út úr tilboðinu.

Hafnarstjóri óskar eftir að fá að ganga til samninga við Þjótanda á fyrstu tveimur áföngum verkefnisins sem eru rannsóknarborun og jarðvinna. Lokaáfanginn snýr að bakfyllingu og yfirborðsfrágangi og verður tekin ákvöðun um þann áfanga þegar liggur fyrir hvernig efni er í tilraunaholunni. Fyrir liggur staðfesting frá Vegagerðinni um að 60% af kostnaðinum verði þeirra með því skilyrði að ríkisstyrkt verkefni sem nýta námuna í framtíðinni munu ekki greiða sérstaklega fyrir efnistöku eða námugjöld.

Niðurstaða
Ráðið samþykkir að taka tilboði Þjótanda og felur hafnarstjóra að ganga til samninga við fyrirtækið á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs.
2. 202604001 - Umhverfismat vegna stórskipakants og grjótleitar
Hafnarstjóri óskar eftir heimild til að fara í verðkönnun á kostnaði við Umhverfismat fyrir Vestmannaeyjahöfn.

Þann 23. mars sl. var fundað með bæjarstjórn og framkvæmda- og hafnarráði þar sem hafnarstjóri og sviðstjóri fór yfir stöðuna varðandi framtíðar uppbyggingu stórskipakants út við Eiði.

202604030

Niðurstaða
Ráðið felur hafnarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að fara í verðkönnun fyrir umhverfismat og nýtt aðalskipulag á svæðinu við Eiðið.
3. 202404001 - Gjábakki
Verklok voru 2. febrúar 2026 skv. fundargerð frá Vegagerðinni.

Niðurstaða
Ráðið þakkar Krönum ehf fyrir vel unnin störf og gott samstarf við starfsmenn sveitarfélagsins.
4. 202404001 - Gjábakki
Eitt tilboð barst í frágang á Gjábakkakanti. Tilboðið nam 99.081.819 með vsk. frá HS vélaverk ehf.
Innifalið í tilboðinu er m.a. jarðvinna, stoðveggur og undirstöður ljósamastra, lagnaskurðir, ídráttarör og vatnslögn og steypa þekju.

Niðurstaða
Ráðið samþykkir að taka tilboði HS vélaverk ehf. og felur hafnarstjóra að ganga til samninga við fyrirtækið á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs.
5. 202604002 - Aðild að Cruise Europe
Hafnarstjóri fór yfir mikilvægi þess að Vestmannaeyjahöfn gerist aðili að Cruise Europe sem er hagsmunafélag í skemmtiferðaskipaiðnaðinum í Evrópu. Kostnaðurinn við inngönguna er 1500 evrur og árgjaldið 2000 evrur miðað við þann fjölda farþega sem hingað koma með skemmtiferðaskipum. Kostnaðurinn við aðildina rúmast innan fjárhagsáætlunar.

202604032

Niðurstaða
Ráðið felur hafnarstjóri að ganga frá aðild Vestmannaeyjahafnar að Cruise Europe.
Cruise Europe 2026.pdf
6. 202604003 - Eiðið landrof
Töluvert landrof hefur verið úti við Eiðið sökum erfiðrar veðráttu undanfarnar vikur. Fyrirhugað er að kanna hvort hægt sé að nýta grjót sem kemur til vegna rannsóknar á haugasvæðinu. Hafnarstjóri óskar eftir leyfi til að að kanna hjá Vegagerðinni með þeirra aðkomu að verkinu þar sem um sjóvarnir er að ræða.

Niðurstaða
Hafnarstjóra er falið að hafa samband við Vegagerðina varðandi endurbætur á sjóvörnum við Eiðið.

202604034
7. 202601099 - Íþróttamiðstöð - Framkvæmdir 2026
Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu framkvæmda við sundlaugina. Framkvæmdarkostnaður og verktími fór fram yfir áætlanir. Umfang verksins fór töluvert fram úr áætlun þar sem ástand á búnaði og sundlaug var mun verra en áætlað var. Ekki var gert ráð fyrir fjármagni í fjárhagsáætlun 2026. Óska þarf eftir viðauka til bæjarráðs vegna kostnaðar sem hefur fallið til á árinu 2026.

Niðurstaða
Ráðið samþykkir að óska eftir viðauka til bæjarráðs við fjárhagsáætlun 2026 vegna framkvæmda við sundlaugina og felur framkvæmdastjóra að fylgja málinu eftir.
8. 202601130 - Gatnagerð - Sólhlíð
Fyrir liggja verkfundargerðir nr. 1 frá 12. mars og nr. 2 frá 19. mars vegna gatnaframkvæmda í Sólhlíð.

Niðurstaða
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi verkfundagerðir.
SOLHLID-VEGAG-FRAV-VERKF-01-2026-03-12.pdf
SOLHLID-VEGAG-FRAV-VERKF-02-2026-03-19.pdf
9. 202604004 - Ársskýrsla Slökkviliðs Vestmannaeyja - 2024 og 2025
Friðrik Páll Arnfinsson slökkviliðsstjóri kynnti ársskýrslu Slökkviliðs Vestmannaeyja fyrir árið 2024 og 2025.

202603185

Niðurstaða
Ráðið þakkar kynningu slökkviliðsstjóra og samþykkir ársskýrslurnar.
Ársskýrslur 2024 2025.pdf
10. 202604005 - Terra - breytingar á gjaldskrá
Terra óskar eftir breytingum á gjaldskrá skv. minnisblaði.

Niðurstaða
Erindi frestað og sviðsstjóra falið að fá bréfritara á næsta fund ráðsins.

202603030
11. 202604006 - Terra - opnunartímar móttökustöðvar
Terra óskar eftir að fá að breyta opnunartíma á móttökustöð við Eldfellsveg.

Tillaga 1
- Opnunartími alla virka daga frá 13:00 til 17:00
- Opnunartími um helgar frá 12:00 til 16:00
Tillaga 2
- Hafa lokað á sunnudögum
- Hafa lokað á miðvikudögum
- Opnunartími á laugadögum kl. 11:00 til 16:00
- Mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga opið frá 11:00 til 17:00

Niðurstaða
Erindi frestað og sviðsstjóra falið að fá bréfritara á næsta fund ráðsins.

202603029
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00 

Til bakaPrenta