| |
| 1. 202310044 - Malarvöllur og Langalág íbúðarbyggð og leikskóli skipulagsáætlanir (ÍB-5) | | Lagt fram til samþykkis um auglýsingu skv. 31. gr. og 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, tillaga að breyttu Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 vegna breytinga landnotkunarreita við Malarvöll og Löngulág og tillaga að nýju deiliskipulagi Íbúðarbyggðar við Löngulág. | Niðurstaða Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti að auglýsa skipulagsáform fyrir Malarvöll og Löngulág skv. 31 gr. og 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Erindi vísað til bæjarstjórnar. | | A1680-007-U01 Malarvöllur Aðalskipulag tillaga til auglýsingar 30_4_2026.pdf | | 260413_LANGALÁG DEILISKIPULAG_DRÖG.pdf | | Deiliskipulag_Langalág_Greinargerd_30_4_2026.pdf | | |
|
| 2. 202605001 - Strandvegur 63 - Umsókn um breytt deiliskipulag | | Jóhann Halldórsson fyrir hönd Island rent KJT ehf. sækir um breytingu á deiliskipulagi við Strandveg 63. Breytingin felur í megin dráttum í sér að hæð byggingar og byggingarreits er hækkuð úr 2 hæðum í 4 og hámarks byggingarmagn eykst frá 348 fm í 691,6 fm, sbr. meðfylgjandi gögn. | Niðurstaða Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti að kynna á vinnslustigi skv. 2. mgr. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breyttu deiliskipulagi Miðbæjar Vestmannaeyja 2. áfangi vegna aukins byggingarmagns við Strandveg 63.
Erindi vísað til bæjarstjórnar. | | Deiliskipulagsuppd.Breyting.Strandvegur63-01.05.pdf | | Strandvegur 63 Skuggavarp marsjuniagust.pdf | | |
|
| 3. 202605002 - Erindi um hótel í Hásteinsgryfju | | Þröstur B. Johnsen sækir um að fá land úthlutað fyrir uppbyggingu á 120 herbergja hótelbyggingu í Hásteinsgryfju. Meðfylgjandi eru myndir af mögulegu útliti hótelsins ásamt afriti af deiliskipulagi Íþróttasvæðis við Hástein sem gerir ráð fyrir lóð fyrir hótel í Hásteinsgryfju. | Niðurstaða Um er að ræða lóð sem ekki er til úthlutunar og hefur ráðið því ekki heimild til að afgreiða erindið og vísar því til bæjarráðs til meðferðar. | | Fyrirspurn um Hótel í Hásteinsgryfju.pdf | | Deiliskipulag Íþróttasvæði við Hástein dags 12_6_2012.pdf | | Hótel í Hásteinsgryfju mögulegt útlit 1.pdf | | Hótel í Hásteinsgryfju mögulegt útlit 2.pdf | | Hótel í Hásteinsgryfju mögulegt útlit 3.pdf | | Hótel í Hásteinsgryfju mögulegt útlit 4.pdf | | Afrit af svarbréfi varðandi hótel 2011.pdf | | |
|
| 4. 202605003 - Búhamar 54 - Umsókn um byggingarleyfi | | Erindi vísað af 80. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa. Björgvin Björgvinsson fyrir hönd lóðarhafa að Búhamri 54 sækir um byggingarleyfi fyrir 207,9 m2 einbýlishúsi, sbr. innsendar teikningar. | Niðurstaða Ráðið felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna erindið skv. 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. | | Búhamar54_aðaluppdráttur 101.pdf | | |
|
| 5. 202605004 - Búhamar 56 - Umsókn um byggingarleyfi | | Erindi vísað af 80. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa. Björgvin Björgvinsson fyrir hönd lóðarhafa að Búhamri 56 sækir um byggingarleyfi fyrir 207,9 m2 einbýlishúsi, sbr. innsendar teikningar. | Niðurstaða Ráðið felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna erindið skv. 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. | | Búhamar56_aðaluppdráttur 101.pdf | | |
|
| 6. 202605005 - Fjólugata 8 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir sólskála | | Erindi vísað af 80. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa. Sigurður Smári Benónýsson sækir um byggingarleyfi fyrir 13 m2 sólhúsi fyrir hönd lóðarhafa að Fjólugötu 8, sbr. innsend gögn. Fyrir liggur samþykki eiganda efri hæðar hússins. | Niðurstaða Ráðið samþykkir erindið og fellur frá grenndarkynningu sbr. 3. málsgrein 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin er talin hafa óveruleg grenndaráhrif. | | 260425-Fjolugata-8-solstofa-A3.pdf | | |
|
| 8. 202605008 - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 80 | | Fundargerð lögð fram til staðfestingar. | Niðurstaða Ráðið staðfestir fundargerðina. | | Fundargerð 80 afgreiðslufundur byggingarfulltrúa.pdf | | |
|
| |
| 7. 202604011F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 23 | | Fundargerð lögð fram til staðfestingar. | Niðurstaða Ráðið staðfestir fundargerðina. | 7.1. 202604023 - VM3 - færsla háspennustrengs við tengivirki Erindi samþykkt. Verkinu skal að fullu lokið 20. maí 2026. Lögð er áhersla á vandaðan frágang og að röskun á svæðinu verði með minnsta móti á framkvæmdatíma. Skal frágangur yfirborðs vinnast jafnt og þétt yfir framkvæmdatímann og skurðir ekki standa opnir lengur en nauðsynlegt er. Verkefnið telst ekki vera lokið fyrr en yfirborði sem nauðsynlegt er að raska vegna fyrirhugaðra framkvæmda hefur verið sett aftur í upprunalegt horf. Ef umsækjandi hefur ekki gengið frá yfirborði með fullnægjandi hætti fyrir skilgreindan lokafrest áskilur Vestmannaeyjabær sér rétt til að ganga frá yfirborði á kostnað umsækjanda. Áréttað er að framkvæmdir skulu ekki dragast umfram veitt tímamörk og er framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs falin eftirfylgd málsins. | | |
|