Til bakaPrenta
Bæjarráð Vestmannaeyja - 3252

Haldinn í Ráðhúsinu,
04.02.2026 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu: Njáll Ragnarsson formaður,
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir varaformaður,
Eyþór Harðarson aðalmaður,
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Drífa Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 201212068 - Umræða um samgöngumál
Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs fór yfir rekstur Herjólfs árið 2025. Reksturinn er í góðu jafnvægi og árið 2025 kom umtalsvert betur út en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Ólafur Jóhann fór einnig yfir farþegatölur síðasta árs. Herjólfur flutti 441.626 farþega á árinu sem er metfjöldi. Til samanburðar var farþegafjöldinn 428.243 árið 2024.

Samgönguáætlun er nú til umfjöllunar hjá umhverfis- og samgöngunefnd og opið er fyrir umsagnir um tillöguna til 9. febrúar nk. Ráðið fór yfir drög að umsögn sem liggur fyrir.

Bæjarráð ræddi fund sem ráðið átti með fulltrúum Vegagerðarinnar þann 3. febrúar sl. um stöðuna á dýpkunarmálum í Landeyjahöfn og útboð um dýpkun til næstu þriggja ára sem lýkur í næstu viku. Bæjarráð ítrekaði kröfur bæjarins um tæknilega getu þeirra aðila sem sinna dýpkuninni.
Fram kom í máli Vegagerðarinnar að tillögur frá DHI dönsku straumfræðistofnuninni sem unnar hafa verið fyrir Vegagerðina um úrbætur á Landeyjahöfn er að vænta í vor.

Niðurstaða
Bæjarráð þakkar framkvæmdastjóra Herjólfs yfirferðina.

Þá felur bæjarráð bæjarstjóra að senda umsögn um samgönguáætlun til Alþingis.

Gestur:
Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs.
2. 202601166 - Náttúrustofa Suðurlands - viðauki við fjárheimildir 2025
Tekin fyrir beiðni um viðauka fyrir Náttúrustofu Suðurlands. Um er að ræða rekstrarviðauka kr. 5.399.000 þar sem framlag Vestmannaeyjabæjar til Náttúrustofu lækkar samtals um kr. 799 þúsund og heimiluð eru kaup á tækjabúnaði upp á 4,6 m.kr. umfram fjárhagsáætlun. Viðaukinn er fjámagnaður með handbæru fé Náttúrustofu.
Viðaukinn liggur fyrir í máli 3.
3. 202502131 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025
Viðauki 10 vegna Náttúrustofu lagður fram til samþykktar.

Niðurstaða
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðaukann.
4. 202601167 - Strandvegur 26E - Sala á fasteign
Farið var yfir þau tvö kauptilboð sem bárust í fasteign Vesmannaeyjabæjar að Strandvegi 26E sem auglýst var til sölu þann 13. janúar.

Niðurstaða
Bæjarráð samþykkir samhljóða að taka tilboði Bifreiðaverkstæðisins Braggans sf. sem barst í eignina.

Gestur
Brynjar Ólafsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs.
SKM_C4050i260114144800.pdf
SKM_C4050i260115131200.pdf
5. 202403033 - Ægisgata 2
Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs fór yfir verðmat sem gert var á eign Vestmannaeyjabæjar að Ægisgötu 2. Húsnæðisnefnd sveitarfélagsins leggur til að sveitarfélagið selji 2. og 3. hæð fasteignarinnar.

Niðurstaða
Bæjarráð samþykkir samhljóða að setja 2. og 3. hæð Ægisgötu 2 í söluferli. Skila þarf inn tilboðum í síðasta lagi 20. mars og verður afstaða tekin til þeirra á fundi bæjarráðs þann 25. mars. Sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs er falinn framgangur málsins.

Gestur
Brynjar Ólafsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs.
6. 202601054 - Erindi frá ÍBV
Framhald af 12. máli 3251. fundar bæjarráðs frá 14. janúar sl. varðandi óskir ÍBV um aðstoð Vestmannaeyjabæjar vegna tjóns sem félagið varð fyrir vegna tafa á framkvæmdum Hásteinsvallar og óveðurs á Þjóðhátíð. Sviðsstjóri fór yfir það helsta sem kom fram á fundi með forsvarsmönnum ÍBV og nánari útlistun á óskum félagsins varðandi aðkomu Vestmannaeyjabæjar.

Niðurstaða
Bæjarráð samþykkir með tveimur atkævæðum D og H lista að veita ÍBV íþróttafélagi sérstakt framlag að fjárhæð 5 milljónir króna. Fjármálastjóra er falið að gera viðauka sem lagður verður fyrir næsta fund ráðsins. Fulltrúi E lista sat hjá við atkvæðagreiðslu.

Bókun frá fulltrúa E lista

Undirritaður getur ekki samþykkt umrædda beiðni enda er það ekki hlutverk bæjarsjóðs að ábyrgjast fjárhagslega velgengni þjóðhátíðar.

Njáll Ragnarsson (sign.)
-Minnisblað vegna tilfallandi kostnaðar vegna tafa á framkvæmdum á Hásteinsvelli.pdf
Minnisblað - vegna fjárhagslegs tjóns á Þjóðhátíð 2025 .pdf
7. 202512091 - Opið bréf varðandi dagvistunarmál
Framhald af 1. máli 402. fundar Fræðsluráðs Vestmannaeyja dags. 15.01.2026 og varðar hugmyndir að bjóða á ný þjónustu dagforeldra. Minnisblað frá framvæmdastjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs. Vísað er til bæjaráðs tillögu um að auglýst verði eftir dagforeldrum.

Niðurstaða
Bæjarráð samþykkir samhljóða að auglýst verði eftir dagforeldrum samkvæmt tillögum fræðsluráðs og felur sviðsstjóra fjölskyldu-og fræðslusviðs framgang málsins.
Minnisblað til bæjarráðs vegna þjónustu dagforeldra jan 2026.pdf
8. 201604034 - Heimgreiðslur
Framhald af 2. máli 402. fundar Fræðsluráðs Vestmannaeyja dags. 15.01.2026. Breytingar á reglum heimgreiðslna. Minnisblað frá framkvæmdastjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs.
Tillögum um breytingum á reglunum er vísað til bæjarráðs.

Niðurstaða
Bæjarráð samþykkir tillögur fræðsluráðs frá 15. janúar og jafnframt að fylgst verði með áhrifum breytinganna eins og fram kemur í minnisblaði.

Bókun fulltrúa D lista

Undirritaður er mótfallinn tekjutengingu heimgreiðslna enda vinnur slíkt fyrirkomulag gegn tilgangi heimgreiðslna sem er að leysa úr umfram eftirspurn eftir leikskólaplássum. Að öðru leyti vísar undirritaður i fyrri bókanir fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um málið.

Eyþór Harðarson (sign.)


Bókun fulltrúa E og H lista

Með afnámi tekjutengingar felst annað hvort tvöföldun á kostnaði (úr 16 í 30 milljónir) eða lækkun fjárhæðarinnar til hvers og eins úr 220 þúsund í 110 þúsund líkt og Sjálfstæðisflokkurinn lagði til í febrúar 2024.
Óljóst er hvort fulltrúi Sjálfstæðisflokksins sé að leggja til að lækka greiðslurnar í 110 þúsund.

Njáll Ragnarsson (sign.)
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir (sign.)


Bókun fulltrúa D lista

Ómögulegt er að halda því fram að slik ákvörðun tvöfaldi gjaldaliðinn enda liggja ekki fyrir launaupplýsingar þeirra foreldra sem gætu nýtt sér úrræðið. Jafnvel þó að heimgreiðslum yrði haldið í 220 þúsundum jafnt á alla væri það á endanum hagkvæmara úrræði en sá kostnaður sem félli á sveitarfélagið við að fjármagna rekstur leikskólaplássins.

Eyþór Harðarson (sign.)

Bókun fulltrúa E og H lista

Undirrituð vísa til minnisblaðs sviðsstjóra um áætlaðan kostnað.

Njáll Ragnarsson (sign.)
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir (sign.)
Minnisblað til bæjarráðs vegna heimgreiðslna jan 2026.pdf
9. 202406085 - Þjónustukannanir Gallup
Bæjarstjóri greindi frá helstu niðurstöðum könnunar Gallup á þjónustu sveitarfélaga fyrir árið 2025. Markmiðið með könnuninni er að kanna ánægju með þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins og bera saman niðurstöður milli sveitarfélaga, en jafnframt að skoða breytingar frá fyrri mælingum. Íbúar eru mjög ánægðir með Vestmannaeyjar sem stað til að búa á og er bærinn þar í 2.-4. sæti. Þegar ánægja með þjónustu við einstaka málaflokka er mæld er Vestmannaeyjabær í 1. sæti varðandi þjónustu við fatlað fólk, 1. sæti varðandi þjónustu við eldri borgara og í 2.-3. sæti er varðar þjónustu við barnafjölskyldur.Sveitarfélagið er fyrir ofan meðaltal í öllum þáttum könnunarinnar nema í sorphirðunni en þar mælist mikil óánægja og sýnir marktæka lækkun á milli kannana.

Ekki verður farið yfir niðurstöður könnunarinnar á sérstökum íbúafundi að þessu sinni en þær eru aðgengilegar með fundargerðinni og verður send út fréttatilkynning með niðurstöðunum.


Niðurstaða
Bæjarráð þakkar kynninguna og lýsir yfir ánægju með niðurstöðurnar. Líkt og undanfarin ár kemur Vestmannaeyjabær heilt yfir afar vel út úr könnuninni. Mikilvægt er þó að skoða sorpmálin og gera úrbætur þar á.
10. 202601094 - Tillaga um fýsileikakönnun á byggingu sjúkrasundlaugar
Tekið fyrir mál sem vísað var til bæjarráðs af 1622. fundi bæjarstjórnar þar sem bæjarráði er falið að útfæra framvindu fýsileikakönnunar á byggingu sjúkrasundlaugar.

Niðurstaða
Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna fýsileikakönnun byggða á greinargerð sem fylgir tillögunni og meta kostnaðinn við byggingu á slíkri laug.
Tillaga vegna sjúkralaugar (1).pdf
11. 202601165 - Fundargerðir til kynningar 2026
Fundargerðir samtaka, nefnda og ráða lagðar fram til kynningar.
632.-fundargerd-SASS_090126_undirritud.pdf
631.-fundargerd-SASS_051225-2.pdf
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 992.pdf
12. 200708078 - Trúnaðarmál lögð fyrir bæjarráð
Trúnaðarmál eru færð í sérstaka fundargerð trúnaðarmála.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:25 

Til bakaPrenta