Til bakaPrenta
Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 332

Haldinn í fundarsal Ráðhúss,
05.03.2026 og hófst hann kl. 14:15
Fundinn sátu: Erlingur Guðbjörnsson formaður,
Arnar Richardsson aðalmaður,
Hannes Kristinn Sigurðsson varaformaður,
Helga Jóhanna Harðardóttir aðalmaður,
Ragnheiður Sveinþórsdóttir aðalmaður,
Dóra Björk Gunnarsdóttir starfsmaður sviðs, Brynjar Ólafsson framkvstj.sviðs.
Fundargerð ritaði: Brynjar Ólafsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 202206134 - Stytting Hörgaeyrargarðs
Hafnarstjóri óskar eftir samþykki ráðsins til að fara í undirbúningsvinnu vegna styttingar. Það sem er fyrirliggjandi er að undirbúa útboð í styttingu og dýpkun sem og samþykki umhverfisstofnunar fyrir því að nýta efnið utan við Eiðið.

Niðurstaða
áðið samþykkir og felur hafnarstjóra að undirbúa útboð fyrir styttingu og dýpkun. Einnig að sækja um hjá Umhverfisstofnun losunarheimild og nýta efnið utan við Eiðið.
Umhverfisstofnun 2026.pdf
2. 202602019 - Vinnubátur lítill dráttarbátur
Hafnarstjóri fékk umboð frá framkvæmda- og hafnarráði í síðustu viku í tölvupósti til að ganga frá kaupum með óverulegum breytingum á skilmálum frá því sem búið var að samþykkja á síðasta fundi ráðsins nr. 331.

- Verð á bát fer úr 900.000$ í 875.000$.
- Botnskoðun verður ekki framkvæmd fyrir afhendingu.
- Frestur til að ganga út úr samkomulaginu fyrir okkur fer frá 31. mars til 30. apríl.
- Við afhendingu skal báturinn vera í því ástandi sem hann var í við skoðun 2. og 3. febrúar 2026.

Niðurstaða
Ráðið staðfestir umboð sem var veitt í tölvupósti þann 25.02.26.
3. 202603009 - Island Adventures - umsókn til framkvæmda- og hafnarráðs
Erindi barst frá Island Adventures um að bæta við aðgengi inn á lóð Básaskersbryggju 6.

202603010

Niðurstaða
Ráðið samþykkir erindið.
img_260302234048-0001.pdf
Messenger_creation_DBDD5739-C1AD-41A2-88C0-30EB82D7DBD5.pdf
Islandadventure_skipulag_260228_202230.pdf
Til Framkvæmda og hafnarráðs Vestmannaeyja,.pdf
4. 202512110 - Fyrirspurn um svæði fyrir gám með aðgengi að rafmagni og vatni
Georg Eiður Arnarsson og Guðmundur Adolfsson óska eftir aðstöðu fyrir 20 feta gám á hafnarsvæðinu með tengingu við rafmagn og vatn.

Niðurstaða
Ráðið felur hafnarstjóra að gera drög að samkomulagi fyrir stöðuleyfi og leggja fyrir næsta fund ráðsins.
Stöðuleyfi fyrir gám.pdf
5. 202603010 - Nýtt hlutverk fyirr bátaskýlið á Skansinum
Á fundi bæjarráðs 5. apríl 2024 var samþykkt að fela framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, forstöðumanni Safnahúss Vestmannaeyja, forstöðumanni Eldheima og safnstjóra Sagnheima að vinna að undirbúningi og tímalínu við gerð nýrrar menningarstefnu og leggja fyrir bæjarráð tillögu að verkefninu.

Samhliða þeirri vinnu hefur starfshópurinn einnig velt fyrir sér hvort unnt sé að miðla menningararfi Vestmannaeyja með fjölbreyttari hætti en nú er gert, án þess að það leiði af sér viðbótarkostnað í rekstri sveitarfélagsins.

Ein þeirra hugmynda sem starfshópurinn hefur til skoðunar er að nýta bátaskýlið á Skansinum undir safn- og miðlunarrými sem segi sögu Tyrkjaránsins.

Tilefnið er að árið 2027 verða 400 ár liðin frá árás sjóræningja á Vestmannaeyjar, þegar 242 Eyjabúar voru hertóknir og fluttir sem þrælar til Alsír.

Með þessu bréfi er hugmyndin kynnt fyrir Framkvæmda- og hafnarráði og óskað eftir heimild ráðsins til að kanna betur kosti hennar, m.a. með frumathugun á:
? mögulegum notum og hlutverki húsnæðisins,
? forsendum vegna aðgengis, öryggis og reksturs,
? áætluðum framkvæmdakostnaði og tímaramma,
? samlegð með starfseminni sem þegar er fyrir á Skansinum.

Að lokinni slíkri frumathugun yrði niðurstaða lögð fyrir til frekari ákvörðunar og næstu skrefa.

Rétt er að taka skýrt fram hér að lokum að ætlun starfshópsins er að fá styrki fyrir framkvæmdum.

202603001

Niðurstaða
Ráðið tekur vel í hugmyndina enda var bátaskýlið keypt árið 2013 með það í huga að nýta það í tengslum við safnasvæðið á Skansinum. Ráðið samþykkir að fara í frumathugun skv. erindi og niðurstöður skulu vera lagðar fyrir fund ráðsins til ákvörðunar varðandi næstu skref.
6. 202603011 - Þjónustuhús á Vigtartorgi
Hafnarstjóri lagði fram tillögu að þjónustuhúsum á Vigtartorg til útleigu.

20260313

Niðurstaða
Ráðið tekur vel í tillöguna og felur hafnarstjóra að vinna áfram með málið með arkitekt svæðisins.
7. 202603012 - Leikskóli í Löngulág - útboð á hönnun
Sviðsstjóri óskar eftir að hefja vinnu við útboðsgögn fyrir hönnnun á leikskóla við Löngulág.

202603009

Niðurstaða
Ráðið samþykkir og felur sviðsstjóra að vinna útboðsgögn fyrir hönnun á nýjum leikskóla við Löngulág. Ráðið óskar einnig eftir tilnefningum frá fræðsluráði í faghóp sem vinnur með sviðsstjóra á hönnunarstigi leikskólans.

Helga Jóhanna Harðardóttir vék af fundi og kom ekki aftur inn á fund.
8. 202601100 - Íþróttamiðstöð viðbygging
Sviðsstjóri lagði fram útboðsgögn eftir rýni og lagfæringar.

Niðurstaða
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi útboðsgögn og felur sviðsstjóra að auglýsa útboð.
9. 202601099 - Íþróttamiðstöð - Framkvæmdir 2026
Sviðsstjóri fór yfir stöðu framkvæmda í íþróttamiðstöðinni:

Framkvæmdir við sundlaug:
- Lokafrágangur verktaka: Áætlað er að rafvirkjar og pípulagningamenn ljúki uppsetningu í þessari viku. Í kjölfarið fer fram ítarleg prufukeyrsla á öllum búnaði til að tryggja öryggi og virkni.
- Stjórnbúnaður og hugbúnaður: Í næstu viku verður tölvustýrt stjórnkerfi sett upp. Kerfið mun bera ábyrgð á sjálfvirkri stýringu á nýju hreinsikerfi og vatnsbúnaði sundlaugarinnar.
- Opnun: Þegar prófunum á stjórnkerfinu er lokið verður hafist handa við að fylla laugina. Að þeirri vinnu lokinni verður hún opnuð almenningi á ný.

Niðurstaða
Ráðið þakkar yfirferðina.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:40 

Til bakaPrenta