Til bakaPrenta
Bæjarstjórn Vestmannaeyja - 1621

Haldinn í Ráðhúsinu,
25.11.2025 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Páll Magnússon forseti,
Helga Jóhanna Harðardóttir aðalmaður,
Íris Róbertsdóttir aðalmaður,
Njáll Ragnarsson aðalmaður,
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir aðalmaður,
Hildur Sólveig Sigurðardóttir aðalmaður,
Eyþór Harðarson aðalmaður,
Margrét Rós Ingólfsdóttir aðalmaður,
Gísli Stefánsson aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Drífa Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Samþykkt var með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa að taka inn á dagskrá með afbrigðum fundargerð bæjarráðs nr. 3249


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 202504032 - Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2026
-Seinni umræða-

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, gerði grein fyrir þeim breytingum sem orðið hafa á fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2026 frá fyrri umræðu.

Gert ráð fyrir að staða bæjarsjóðs Vestmannaeyja verði áfram traust. Í fjárhagsáætluninni er lögð áhersla á ábyrga fjármálastjórn, þar sem gætt verður aðhalds í rekstri bæjarins og varlega áætlað um tekjur. A-hluti bæjarsjóðs er skuldlaus við fjármálastofnanir. Útsvar er stærsti einstaki tekjuliður bæjarfélagsins. Við gerð áætlunarinnar um útsvar er byggt á lokaspá fjármálastjóra bæjarins um raunútsvarstekjur fyrir árið 2025.
Samkvæmt framlagðri fjárhagsáætlun nú við seinni umræðu er gert ráð fyrir að rekstrarafgangur A-hluta bæjarsjóðs verði 395 m.kr., en hjá samstæðunni 541 m.kr. Rekstrarafgangur hækkar milli fyrri og síðari umræðu eða um 100 m.kr.

Breytingar á milli áætlana tengjast bæði tekju- og gjaldaliðum eins og farið var yfir í kynningu bæjarstjóra. Áætlun fjárhæð til fjárfestinga hækkaði um 30 m.kr. Ekki er gert ráð fyrir framlagi á næsta ári vegna almannavarnalagnar enda uppbygging almannavarna á hendi ríkisins og viðræður þar að lútandi í gangi.

Í A- hluta sveitarsjóðs eru áætlaðar eignfærðar framkvæmdir að fjárhæð 805 m.kr., en í B-hluta eru áætlaðar framkvæmdir 275 m.kr. Samanlagðar eignfærslur eru áætlaðar 1.080 m.kr. Gerð er grein fyrir helstu verkefnum í glærukynningu bæjarstjóra sem fylgir fundargerðinni.

Þá er gert ráð fyrir tæpri 492 m.kr. til ýmissa gjaldfærðra verkefna, svokallaðra sérsamþykkta. Einnig er um að ræða ýmiss önnur átaksverkefni. Í A- hluta eru gjaldfærslur að fjárhæð 348 m.kr. og í B- hluta 144 m.kr.

Staða bæjarsjóðs verður áfram sterk. Skuldaviðmið A hluta er 19,2% og samstæðu 11,4%. Gert er ráð fyrir góðri rekstrarafkomu, áframhaldandi góðri þjónustu við bæjarbúa, hagkvæmni í rekstri, hóflegum sköttum og gjöldum ásamt fjárfestingum til að styðja við eignir og innviði bæjarins.

Niðurstaða
Við umræðu um fjárhagsáætlun 2026 tóku til máls: Íris Róbertsdóttir, Eyþór Harðarson, Njáll Ragnarsson, Hildur Sólveig Sigurðardóttir, Helga Jóhanna Harðardóttir og Páll Magnússon

Bókun bæjarfulltrúa D lista

Sveitarfélagið stendur frammi fyrir margvíslegum áskorunum. Hækkun veiðigjalda hefur nú þegar valdið uppsögnum og neikvæðum afleiðingum fyrir sveitarfélagið. Óvissa ríkir um fjármögnun vatnsleiðslu og umfangsmikil viðhaldsverkefni eru framundan í mörgu húsnæði sveitarfélagsins.


Svigrúm er orðið af skornum skammti í sjóðum sveitarfélagsins og ljóst að framundan verða krefjandi ár í rekstri. Mikilvægt er að hafa ábyrga meðferð fjármuna að leiðarljósi og hagrætt verði þar sem kostur er á. Ánægjulegt er að tillaga bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um áframhaldandi vinnu við hagræðingu á fleiri sviðum sveitarfélagsins sé komin í farveg.


Framtíðin er björt í Vestmannaeyjum, fólki heldur áfram að fjölga og atvinnulíf blómstar en áfram er nauðsynlegt að standa kröftuglega vörð um atvinnuvegi, stöðu og hagsmuni landsbyggðarinnar gegn skattaglaðri og borgarmiðaðri ríkisstjórn.

Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign.)
Gísli Stefánsson (sign.)
Eyþór Harðarson (sign.)
Margrét Rós Ingólfsdóttir (sign.)

Bókun bæjarfulltrúa E og H lista

Rekstur Vestmannaeyjabæjar er traustur og gert er ráð fyrir jákvæðri afkomu í áætluninni, þrátt fyrir varlega áætlaðar tekjur. Gert er ráð fyrir betri afkomu en við fyrri umræðu eða um 541 m.kr. á samstæðunni.

Mikil uppbygging er í gangi í Vestmannaeyjum bæði hjá fyrirtækjum og íbúum og mun sveitarfélagið áfram leggja áherslu á ábyrgan og hagkvæman rekstur, samhliða því að tryggja góða og faglega þjónustu við íbúa.

Í þessari síðustu fjárhagsáætlun kjörtímabilsins kemur glöggt fram að þrátt fyrir ýmsar áskoranir í rekstri og ytra umhverfi þá stendur sveitarfélagið vel. Spennandi tímar eru framundan og mikil uppbygging fyrirhuguð.

Páll Magnússon (sign.)
Íris Róbertsdóttir (sign.)
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir (sign.)
Njáll Ragnarsson (sign.)
Helga Jóhanna Harðardóttir (sign.)

Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar, bar upp lykiltölur í fjárhagsáætlun 2026.


Fjárhagsáætlun sveitarsjóðs Vestmannaeyja 2026:

Tekjur alls: kr. 7.064.600.000

Gjöld alls fyrir fjármagnsliði: kr. 6.739.055.000

Rekstrarniðurstaða,jákvæð: kr. 394.887.000

Veltufé frá rekstri: kr. 1.060.514.000

Afborganir langtímalána: kr. 0

Handbært fé í árslok: kr. 1.927.350.000


Fjárhagsáætlun B-hluta bæjarsjóðs Vestmannaeyja 2026:

Rekstrarniðurstaða Hafnarsjóðs: kr. 3.223.000

Rekstrarniðurstaða Vatnsveitu, tap: kr. -14.350.000

Rekstrarniðurstaða Fráveitu: kr. 139.632.000

Rekstrarniðurstaða Félagslegra íbúða: kr. 0

Rekstrarniðurstaða Náttúrustofu Suðurlands, tap: kr. -3.605.000

Rekstrarniðurstaða Eygló eignarhaldsfélags ehf., tap: kr. -500.000

Rekstrarniðurstaða Herjólfs ohf.: kr. 21.779.000

Veltufé frá rekstri: kr. 371.910.000

Afborganir langtímalána: kr. 9.262.000


Fjárhagsáætlun samstæðu Vestmannaeyja 2026:

Tekjur alls: kr. 10.448.662.000

Gjöld alls: kr. 9.987.288.000

Rekstrarniðurstaða, jákvæð: kr. 541.065.000

Veltufé frá rekstri: kr. 1.432.424.000

Afborganir langtímalána: kr. 9.262.000

Handbært fé í árslok: kr. 2.658.677.000

Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar samþykkt samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.





Fjárhagsáætlun 2026 - Seinni umræða.pdf
framsaga fjárhagsáætlun seinni umræða 2025 .pdf
fjarhagsaaetlun-2026-seinni.pdf
Minnisblað_Framtíðarsý fjárfestinga og viðhalds.pdf
2. 202510110 - Þriggja ára fjárhagsáætlun 2027-2029
-Seinni umræða-

Íris Róbertsdóttir gerði grein fyrir þriggja ára fjárhagsáætlun 2027 til 2029 og sérstaklega þeim framkvæmdum sem áætlaðar eru á umræddu þriggja ára tímabili.

Stærstu framkvæmdir næsta árs eru viðbygging við íþróttamiðstöðina og flóðljós á Hásteinsvöll. Einnig verður lögð áhersla á uppbyggingu annarra innviða en stafshópur um framtíðaruppbygginu hjá sveitarfélaginu mun skila tillögum á nýju ári og verða þá framtíðaráform um fjárfestingar kynnt betur.

Niðurstaða
Við umræðu um þriggja ára fjárhagsáætlun tók til máls: Íris Róbertsdóttir

Þriggja ára fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027-2029 samþykkt samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.
3 ára áætlun 2027-2029 - Seinni umræða.pdf
Þriggja ára fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027-2029 - Seinni umræða.pdf
Thriggja-ara-aaetlun-framkvaemdir-2027-2029_glæur.pdf
3. 201906047 - Breytingar á bæjarmálasamþykkt Vestmannaeyjabæjar
Þetta er fyrri umræða um breytingarnar sem liggja fyrir og eru tæknilegs eðlis þar sem um er að ræða breytingu á starfsheiti framkvæmdastjóra sviða þar sem starfsheitið sviðsstjóri kemur í stað framkvæmdastjóra.

Niðurstaða
Samþykkt samhljóða að vísa breytingum á bæjarmálasamþykkt til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
Breyting á bæjarmálasamþykkt.pdf
4. 201006074 - Kosning í ráð, nefndir og stjórnir skv. 42. gr. bæjarmálasamþykktar Vestmannaeyjabæjar.
Lagt er til að Hildur Rún Róbertsdóttir verði aðalmaður i fjölskyldu- og tómstundaráði í stað Salóme Ýrar Rúnarsdóttur og að Salóme Ýr verði varamaður í ráðinu í stað Díönu Ívu Gunnarsdóttur.

Niðurstaða
Tillagan samþykkt samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.
5. 201705071 - Húsnæðisáætlun
Húsnæðisáætlun Vestmannaeyjabæjar 2026 lögð fram til samþykktar. Bæjarráð hefur þegar fjallað um áætlunina og samþykkt hana fyrir sitt leyti.

Niðurstaða
Við umræðu um málið tók til máls: Njáll Ragnarsson

Húsnæðisáætlun Vestmannaeyjabæjar 2026 samþykkt samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.
Húsnæðisáætlun 2026.pdf
Fundargerðir
6. 202510008F - Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja - 321
Liðir 6.1.-6.5. liggja fyrir til upplýsinga.
7. 202510011F - Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 429
Liður 7.1., Breyting á aðalskipulagi - NSL4 Neysluvatnslögn til Eyja, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða staðfestingu á kynningu á vinnslustigi.

Liður 7.3., Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða staðfestingu á auglýsingu svæðisáætlunar.

Liður 7.5., Miðstræti 7 og 11a, Vestmannabraut 20 og 28b - umsókn um breytingu á deiliskipulagi, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða staðfestingu á deiliskipulagsbreytingu.

Liðir 7.2., 7.4. og 7.6. liggja fyrir til upplýsinga.

Niðurstaða
Liður 7.1. samþykktur samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.

Liður 7.3. samþykktur samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.

Liður 7.5. samþykktur samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.

LIÐIR ÚR FUNDARGERÐ UMHVERIFS- OG SKIPULAGSRÁÐS
7.1. 202510140 - Breyting á aðalskipulagi - NSL4 Neysluvatnslögn til Eyja
Lögð fram til kynningar á vinnslustigi, breyting á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 vegna lagningu neysluvatnslagnar NSL4 til Vestmannaeyja og staðsetningu núverandi lagnar NSL3.
Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti að kynna tillögu að breytingum á aðalskipulagi vegna NSL 4 á vinnslustigi.

Erindi vísað til bæjarstjórnar.
7.3. 202011024 - Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs
Lögð er fram til staðfestingar að lokinni auglýsingu Svæðisáæltun vegna meðferðar úrgangs í Vestmannaeyjum í samræmi við 6. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, með síðari breytingum.

Tillaga að svæðisáætlun, ásamt umhverfismatsskýrslu í samræmi við III. kafla laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021 var auglýst á tímabilinu 21. ágúst - 6. október 2025. Engar umsagnir bárust vegna málsins.

Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti að auglýsa svæðisáætlun fyrir meðferð úrgangs í Vestmannaeyjum.

Erindi vísað til bæjarstjórnar.
7.5. 202508149 - Miðstræti 7 og 11a, Vestmannabraut 20 og 28B - umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Tillaga að breyttu skipulagi Miðbæjar Vestmannaeyja, vegna breyttra skilmála á lóðum við Miðstræti 7 og 11a, Vestmannabraut 20 og 28b var grenndarkynnt á tímabilinu 10. september til 8. október 2025.

Ein umsögn barst vegna málsins frá Slökkviliði Vestmannaeyjabæjar.
Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti að staðfesta skipulagsbreytingu vegna Miðbæjar Vestmannaeyja vegna breyttra skilmála á lóðum við Miðstræti 7 og 11a, Vestmannabraut 20 og 28b.

Erindi vísað til bæjarstjórnar.
8. 202510005F - Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja - 328
Liður 8.1., Seatrade Global - Cruise Iceland, liggur fyrir til umræðu.

Liður 8.5., Íþróttahús - Framkvæmdir 2025, liggur fyrir til umræðu.

Liðir 8.2.-8.4. og 8.6. liggja fyrir til upplýsinga.

Niðurstaða
Við umræðu um lið 8.1. tóku til máls: Eyþor Harðarson, Helga Jóhanna Harðardóttir, Íris Róbertsdóttir og Hildur Sólveig Sigurðardóttir

Bókun bæjarfulltrúa D lista

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins taka undir bókun fulltrúa flokksins í ráðinu.

Það skýtur skökku við að á sama tíma og verið er í hagræðingaraðgerðum víða hjá Vestmannaeyjabæ sé tekin ákvörðun um að senda tvo starfsmenn hafnarinnar á kostnaðarsama ráðstefnu erlendis.

Ánægjuleg aukning í komu skemmtiferðaskipa undanfarin ár hefur verið stöðug án þess að slík ráðstefna hafi nýlega verið sótt af hálfu Vestmannaeyjabæjar.

Í ljósi þess að erindið hefur verið samþykkt telja undirrituð mikilvægt að starfsmennirnir fundi með stjórn ferðamálasamtaka Vestmannaeyja til að sameiginlegar áherslur við mögulega viðskiptaaðila komist skilmerkilega til skila og styðji við áframhaldandi vöxt ferðaþjónustunnar.

Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign.)
Gísli Stefánsson (sign.)
Eyþór Harðarson (sign.)
Margrét Rós Ingólfsdóttir (sign.)

Bókun bæjarfulltrúa E og H lista

Meirihluti E- og H- lista taka undir með fulltrúum meirihluta ráðsins. Vestmannaeyjahöfn hefur ekki sent fulltrúa á kaupstefnu sem þessa í 14 ár og í ljósi þeirrar miklu uppbyggingar Vestmannaeyjahafnar sem fyrirhuguð er sem og styttingu Hörgeyrargarðs skapast aukin tækifæri á móttöku stærri skemmtiferðaskipa.

Fulltrúar Vestmannaeyjahafnar hafa vel tök á að skapa tengsl við skipafélög og að kynna framtíðar uppbyggingu hafnarinnar og þá möguleika sem hún býður upp á. Lang flestar hafnir landsins senda fulltrúa á kaupstefnuna til að tryggja sína hagsmuni og styrkja viðskiptatengsl.
Í ljósi fyrirhugaðra innviðagjalda sem stendur til að leggja á hafnir er mikilvægt að mynda tengsl þar sem viðkomuhöfnum á Íslandi mun vafalaust fækka og er sú þróun þegar hafin.

Páll Magnússon (sign.)
Íris Róbertsdóttir (sign.)
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir (sign.)
Njáll Ragnarsson (sign.)
Helga Jóhanna Harðardóttir (sign.)

Við umræðu um lið 8.5. tóku til máls: Eyþór Harðarson, Íris Róbertsdóttir, Hildur Sólveig Sigurðardóttir og Njáll Ragnarsson

Bókun bæjarfulltrúa D lista

Undirrituð leggja áherslu á mikilvægi góðrar upplýsingagjafar við bæjarbúa bæði í gegnum fundargerðir og almennar tilkynningar t.d í bæjarfjölmiðla eða á vef Vestmannaeyjabæjar gagnvart framkvæmdum sem hafa áhrif á samfélagið.

Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign.)
Gísli Stefánsson (sign.)
Eyþór Harðarson (sign.)
Margrét Rós Ingólfsdóttir (sign.)

Bókun bæjarfulltrúa E og H lista

Mikilvægt er að tryggja gott upplýsingaflæði til íbúa varðandi framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins og raskanir sem orðið geta á þjónustu vegna þeirra.

Ný heimasíða Vestmannaeyjabæjar er væntanleg og þar verður sérstaklega gerð grein fyrir framkvæmdum sem mun auka upplýsingaflæði til íbúa.

Páll Magnússon (sign.)
Íris Róbertsdóttir (sign.)
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir (sign.)
Njáll Ragnarsson (sign.)
Helga Jóhanna Harðardóttir (sign.)


LIÐIR ÚR FUNDARGERÐ FRAMKVÆMDA- OG HAFNARRÁÐS
8.1. 202511011 - Seatrade Global - Cruise Iceland
Ósk barst frá hafnarstjóra og hafsögumönnum að sækja ráðstefnu Seatrade Global til að kynna og auglýsa Vestmannaeyjar sem spennandi valkost. Telja starfsmenn nauðsynlegt fyrir Vestmannaeyjahöfn að hitta sína viðskiptavini. Sigurður Jökull Ólafsson framkvæmdastjóri Cruise Iceland kynnti ráðstefnuna Seatrade Global.
Meirihluti E og H lista leggur til að senda tvo fulltrúa hafnarinnar á Seatrade Global sem haldin verður í vor. Vestmannaeyjahöfn hefur ekki sent fulltrúa á kaupstefnu sem þessa í 14 ár. Með framtíðar innviðauppbyggingu Vestmannaeyjahafnar og styttingu Hörgeyrargarðs skapast aukin tækifæri á móttöku stærri skemmtiferðaskipa. Fulltrúar hafnarinnar hafa tök á að skapa meiri tengsl við skipafélög sem og að kynna framtíðar innviðauppbyggingu.

Arnar Richardsson (sign)
Erlingur Guðbjörnsson (sign)
Helga Jóhanna Harðardóttir (sign)

Fulltrúar D lista geta ekki samþykkt beiðnina enda telja þeir það ekki vera hlutverk starfsmanna Vestmannaeyjahafnar að sækja slíka ráðstefnu á erlendri grundu. Nærtækara væri að aðilar í ferðaþjónustunni, fulltrúi ferðamálasamtaka Vestmannaeyja eða sá sem gegnir hlutverki ferðamálafulltrúa Vestmanneyjabæjar sæki ráðstefnu sem þessa í því skyni að auglýsa Vestmannaeyjar og koma á viðskiptasamböndum í ferðaþjónustu.

Sæunn Magnúsdóttir (sign)
Hannes Kristinn Sigurðsson (sign)

Samþykkt með 3 atkvæðum E og H lista gegn 2 atkvæðum D lista. Málinu vísað í seinni umræðu við gerð fjárhagsáætlunar 2026.
8.5. 202511015 - Íþróttamiðstöð - Framkvæmdir 2025
Framkvæmdastjóri fór yfir þær framkvæmdir sem eru í gangi í íþróttamiðstöðinni.

-Viðbygging, jarðvinna að mestu lokið en það á eftir að jarðvegsskipta fyrir framan aðalinnganginn. Útboðsgögn eru í vinnslu og er vonast til að þau liggi klár fyrir á næstunni.

-Endurbætur á afgreiðslu og kaffistofu, komin er bráðabirgða afgreiðsla á meðan framkvæmdum stendur. Niðurrif á núverandi afgreiðslu er lokið og uppbygging hafin.

-Nýtt hreinsikerfi í sundlauginni, vinna við niðurrif gengur vel. Allur búnaður og tæki eru komin til Eyja.

-Lagfæring á köntum og vatnsrennu í sundlauginni, verið að múra kantinn og vatnsþétta rennurnar

-Stækkun á lyftingaraðstöðu
Ráðið þakkar kynninguna.
9. 202511001F - Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja - 322
Liður 9.2, Sköpunarhús, liggur fyrir til umræðu.

Liður 9.3., Lengd viðvera eftir skóla, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða staðfestningu á reglum.

Liðir 9.1. og 9.4. liggja fyrir til upplýsinga.

Niðurstaða
Við umræðu um lið 9.2. tóku til máls: Gísli Stefánsson

Bókun bæjarfulltrúa D lista

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsa yfir ánægju sinni með að Sköpunarhúsið sé komið í þennan farveg. Eyjamenn geta verið stoltir af menningararfleið sinni í tónlist og er Sköpunarhúsið liður í að viðhalda, varðveita og efla þá arfleifð með því að veita ungu fólki rými til að skapa tónlist. Það á að vera metnaður okkar að ungt fólk í Vestmannaeyjum sé í fremstu röð í menningarlífi í landinu enda erum við Eyjamenn í fremstu röð þegar kemur að því að halda stóra og fjölmenna menningarviðburði á landsvísu líkt og Þjóðhátíð er skýrt merki um.

Gísli Stefánsson (sign.)
Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign.)
Eyþór Harðarson (sign.)
Margrét Rós Ingólfsdóttir (sign.)

Liður 9.3. samþykktur samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.

LIÐUR ÚR FUNDARGERÐ FJÖLSKYLDU- OG TÓMSTUNDARÁÐS
9.2. 202212025 - Sköpunarhús
Framhald af 4. máli 319 fundar fjölskyldu- og tómstundaráðs frá 2.09.2025. Eyrún Haraldsdóttir verkefnastjóri æskulýðs- og tómstundamála fór yfir hugmyndir að hlutverki og starfsemi sköpunarhúss. Sköpunarhús verður vettvangur skapandi starfs þar sem ungmenni geta m.a. fengið aðgang að aðstöðu, tækjum og leiðsögn til að vinna að eigin tónlist með áherslu á tónsköpun og útsetningar, upptökur og útgáfu efnis og samvinnu og verkefnavinnu í skapandi umhverfi. Starfsemin verður hluti af starfsemi félagsmiðsstöðvarinnar með samnýtingu á húsnæði og mannauði. Búið er að innrétta rými fyrir starfsemina og farið verður í að auglýsa í stöðu starfsmanns í 50% stöðugildi þegar búið verður að samþykkja fjárhagsætlun fyrir árið 2026. Stefnt er að því að verkefnið byrji fljótlega eftir áramótin.
Ráðið þakkar kynninguna og verður spennandi að sjá árangur verkefnisins.
9.3. 200706207 - Lengd viðvera eftir skóla
Framhald af 4. máli 321. fundar fjölskyldu og tómstundaráðs Vestmannaeyja frá 30.10.2025. Regur til afgreiðslu.
Ráðið samþykkir umræddar reglur
10. 202511002F - Bæjarráð Vestmannaeyja - 3248
Liður 10.6., Mannauðsstefna, liggur fyrir til staðfestingar.

Liður 10.9., Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns starfsmanna Vestmannaeyjabæjar, liggur fyrir til staðfestingar.

Liðir 10.1.-10.5., 10.7.-10.8. og 10.10.-10.14. liggja fyrir til upplýsinga.

Niðurstaða
Liður 10.6. samþykktur samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.

Liður 10.9. samþykktur samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.

LIÐIR ÚR FUNDARGERÐ BÆJARRÁÐS
10.6. 202511049 - Mannauðsstefna
Mannauðsstefna Vestmannaeyjabæjar hefur verið í mótun síðustu mánuði og er nú tilbúin. Eydís Sigurðardóttur, mannauðsstjóri sveitarfélagsins hélt utan um vinnu við gerð stefnunnar og kynnti hana fyrir bæjarráði.
Bæjarráð þakkar kynninguna og samþykkir mannauðsstefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
10.9. 202407046 - Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns starfsmanna Vestmannaeyjabæjar
Bréf frá Brú lífeyrissjóði um endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs starfsmanna Vestmannaeyjabæjar lagt fram til kynningar. Samkvæmt tillögu tryggingastærðfræðings sjóðsins er lagt til að endurgreiðsluhlutfall launagreiðenda á greiddum lífeyri í réttindasafni í Lífeyrissjóði starfsmanna Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2026 verði óbreytt frá fyrra ári eða 70%.
Ráðið þakkar upplýsingarnar og vísar málinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
11. 202511005F - Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 430
Liður 11.2., Stækkun iðnaðarsvæðis í Viðlagaföru - Breyting á aðal- og deiliskipulagi, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða staðfestingu á kynningu á tillögu á vinnslustigi.

Liður 11.3., Ofanleiti skipulagsáætlanir athafnasvæði AT-4, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða staðfestingu á skipulagsáætlunum.

Liður 11.5., Strandvegur 44 - Umsókn um breytingu á deiliskipulagi, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða auglýsingu á breyttu deiliskipulagi.

Liðir 11.1., 11.4. og 11.6.-11.7. liggja fyrir til upplýsinga.

Niðurstaða
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir vék af fundi við afgreiðslu á lið 11.2.
Liður 11.2. samþykktur samhljóða með átta atkvæðum bæjarfulltrúa.

Liður 11.3. samþykktur samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.

Liður 11.5. samþykktur samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.

LIÐIR ÚR FUNDARGERÐ UMHVERFIS- OG SKIPULAGSRÁÐS
11.2. 202510047 - Stækkun iðnaðarsvæðis í Viðlagafjöru - Breyting á Aðal- og deiliskipulagi
Lögð er fram greinargerð með viðbrögðum ráðsins vegna athugasemda sem bárust við skipulagslýsingu á auglýsingartíma.

Skipulagslýsing vegna skipulagsáforma sem fela í sér breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja og á Deiliskipulagi í Viðlagafjöru, vegna aukin umfangs laxeldis á svæðinu var auglýst á tímabilinu 31. október - 14. nóvember 2025.

Sjö umsagnir bárust vegna aðalskipulagbreyingarinna og sjö vegna deiliskipulagsbreytingarinnar allar frá opinberum umsagnaraðilum og eru sex af umsögnunum samskonar fyrir aðalskipulag og deiliskipulag. Lögð er fram greinargerð ásamt tillögum að viðbrögðum þar sem við á.

Samhliða eru lagðar eru fram vinnslutillögur fyrir breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 og breytingu á deiliskipulagi Viðlagafjöru. Tillaga að breyttu aðalskipulagi felur í sér stækkun Iðnaðarsvæðis I-3 yfir meginhluta efnisvinnslusvæðis E-1 til að gefa aukið rými fyrir laxeldi í Viðlagafjöru. Megin viðfangsefni tillögu að breyttu Deiliskipulagi í Viðlagafjöru fela í sér nýja lóð fyrir seiðaeldisstöð á norður hluta iðnaðarsvæðisins, aukið byggingarmagn og uppfærða skilgreiningu lóða.
Ráðið felur skipulagsfulltrúa að kynna tillögu á vinnslustigi að breyttu Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 sbr. 2. mgr. 30. Gr. skipulaglaga nr. 123/2010, og tillögu á vinnslustigi að breyttu deiliskipulagi í Viðlagafjöru skv. 3 mgr. 40. Gr.

Erindi vísað til bæjarstjórnar.
11.3. 202407040 - Ofanleiti skipulagsáætlanir athafnasvæði AT-4
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti þann 11. júní 2025 að auglýsa skipulagsáætlanir vegna stækkunar athafnasvæðis í Ofanleiti. Skipulagsáætlanirnar gera ráð fyrir breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 vegna stækkunar Athafnasvæðis AT-4, nýju deiliskipulagi athafnasvæðis við Ofanleitisveg og breytingu á deiliskipulagi frístundarbyggðar.

Skipulagsáætlanirnar voru auglýstar á tímabilinu 9. september - 21 október 2025. Alls bárust 22 umsagnir frá 13. aðilum vegna málsins, 7 umsagnir frá umsagnaraðilum og 15 frá einstaklingum. Í einhverjum tilfellum var sama umsögn lögð fram fyrir aðalskipulag og deiliskipulag og koma þær umsagnir aðeins einu sinni fyrir í fundargerð.

Lögð er fram greinargerð sem sýnir samantekt vegna umsagna og viðbragða umhverfis- og skipulagsráðs þar sem við á.
Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti að staðfesta skipulagsáætlanir í Ofanleiti sem fela í sér breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 vegna stækkunar Athafnasvæðis AT-4, breytingu á deiliskipulagi Frístundarbyggðar í Ofanleiti og nýtt deiliskipulag Athafnasvæðis við Ofanleiti.

Ráðið þakkar bréfriturum og leggur fram greinargerð með viðbrögðum við athugasemdum.

Erindi vísað til bæjarstjórnar.
11.5. 202502135 - Strandvegur 44 - Umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Lögð fram til samþykkis fyrir auglýsingu tillaga að breyttu Deiliskipulagi Hafnarsvæðis (H-1) og Miðsvæðis M-1 norðan Strandvegar vegna fyrirhugaðra áforma um uppbyggingu fjölbýlishúss og þjónustu við Strandveg 44.

Málið var tekið fyrir á 428 fundi umhverfis- og skipulagsráðs og var lóðarhöfum falið að uppfæra skipulagsgögn í samræmi við samantekt ráðsins og athugasemdir við greinargerð áður en málið skyldi tekið fyrir í bæjarstjórn og málinu vísað til bæjarstjórnar.

Gögn hafa verið uppfærð í samræmi við fyrri athugasemdir ráðsins.
Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Hafnarsvæðis (H-1) og Miðsvæðis M-1 norðan Strandvegar skv. 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga 123/2010.

Erindi vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
12. 202511006F - Fræðsluráð Vestmannaeyja - 400
Liður 12.3, Gjaldskrá leikskóla, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða staðfestingu á nýjum ramma um leikskólastarf og gjaldskrá.

Liður 12.5., Grunnskóli Vestmannaeyja, liggur fyrir til umræðu.

Liðir 12.1.-12.2. og 12.4. liggja fyrir til upplýsinga.

Niðurstaða
Liður 12.3. samþykktur samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.

Við umræðu um lið 12.5. tóku til máls: Hildur Sólveig Sigurðardóttir og Helga Jóhanna Harðardóttir

LIÐUR ÚR FUNDARGERÐ FRÆÐSLURÁÐS
12.3. 202309120 - Gjaldskrá leikskóla
Skýrsla starfshóps, sem skipaður var af fræðsluráði til að vinna að tillögum að breytingum á gjaldskrá leikskóla og vinnudegi barna í leikskólum, lögð fram til kynningar og staðfestingar ráðsins.
Í starfshópnum voru starfsmenn, formaður fræðsluráðs, einn bæjarfulltrúi frá hverjum lista sem á sæti í bæjarstjórn og fulltrúar frá hagaðilum.
Við vinnuna var sérstaklega horft til þess hvernig stytta mætti vinnudag barnanna og í því skyni horft til annarra sveitarfélaga með útfærslur sem gefist hafa vel. Starfshópurinn hefur farið yfir tillögurnar með fulltrúum foreldra í foreldraráðum og foreldrafélögum leikskóla og fulltrúum stéttarfélaga.
Ráðið þakkar kynninguna og starfshópnum fyrir vandaða og faglega vinnu.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi drög með tillögum og gjaldskrá og vísar málinu til bæjarstjórn til staðfestingar. Skýrsla faghópsins verður gerð opinber þegar staðfesting bæjarstjórnar liggur fyrir og í kjölfarið er stefnt að því að halda kynningu fyrir foreldra leikskólabarna.
12.5. 201801005 - Grunnskóli Vestmannaeyja
Skólastjórnendur kynntu hvernig lokun sundlaugar hefur áhrif á sundkennslu og hvernig fyrirkomulag sundkennslu er háttað á meðan innisundlaug er lokuð.
Ráðið þakkar kynninguna og vonast til hefðbundin sundkennsla geti hafist sem fyrst.
13. 202511007F - Bæjarráð Vestmannaeyja - 3249
Allir liðir í fundargerð bæjarráðs liggja fyrir til upplýsinga og umræðu.

Viðaukar 8 og 9 í lið 13.5., Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025, liggja fyrir til staðfestingar.

Liður 13.7., Samningur um Herjólf, liggur fyrir til staðfestingar.

Niðurstaða
Viðauki 8 samþykktur samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.

Við umræðu um viðauka 9 tóku til máls: Íris Róbertsdóttir, Eyþór Harðarson og Njáll Ragnarsson
Viðauki 9 samþykktur samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.

Liður 13.7. samþykktur samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.
13.5. 202502131 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025
Viðauki 8 lagður fram til samþykktar. Um er að ræða 570 m.kr. fjárfestingarviðauka vegna greiðslna til NOV vegna kaupa á almannavarnalögn NSL4. Viðaukinn er fjármagnaður með handbæru fé.

Viðauki 9 lagður fram til samþykktar. Um er að ræða 30 m.kr. fjárfestingarviðauka sem stofnfé í félagi sem mun rannsaka jarðlög fyrir Eyjagöngum. Viðaukinn er fjármagnaður með handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka 8 og 9.
13.7. 202511153 - Samningur um Herjólf
Samningur um Herjólf rennur út 31. desember 2026 en hægt er að framlengja hann um tvö ár eða til 31.12.2028. Sveitarfélagið þarf að senda tilkynningu til ríkisins í janúar 2026 óski það eftir að framlengja samninginn um þessi tvö ár.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra að óska eftir framlengingu á samningnum fyrir hönd sveitarfélagsins. Málinu er vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30 

Til bakaPrenta